25 ára afmæli KLAK fagnað með fjölmennri hátíð í Grósku – Forsetinn blés gestum byr í brjóst

KLAK – Icelandic Startups fagnaði 25 ára afmæli sínu með glæsilegri hátíð í Grósku þann 16. maí síðastliðinn en hátíðin var haldin í sól og blíðu að viðstöddu fjölmenni úr nýsköpunarsamfélaginu. Meðal gesta voru núverandi og fyrrverandi starfsmenn KLAK, áhrifafólk úr viðskiptalífinu og aðrir velunnarar félagsins frá síðastliðnum 25 árum. 

Afmælishátíðin markaði eftirminnilegan endapunkt á nýsköpunarvikunni Iceland Innovation Week 2025 en það var sérstaklega vel við hæfi þar sem fyrrum starfsmenn KLAK, þær Melkorka Sigríður Magnúsdóttir og Edda Konráðsdóttir stofnuðu einmitt þá hátíð.

Heiðursgestur dagsins var Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sem flutti ávarp  um það hugrekki sem þarf til að hafa áhrif og fagnaði með gestum. Með henni kom eiginmaður hennar, Björn Skúlason, sem sjálfur hefur verið afar virkur í nýsköpunarsamfélaginu og tók meðal annars þátt í viðskiptahraðlinum Startup SuperNova á vegum KLAK árið 2020 þegar hann var í þeim fasa að byggja upp nýsköpunarfyrirtæki sitt. Nærvera forsetahjónanna var því bæði skemmtileg og táknræn fyrir tengslin sem hafa byggst upp á þessari vegferð.Við tilefnið var stutt heimildarmynd um sögu KLAK frumsýnd, sem dregur upp áhrifaríka mynd af þróun félagsins frá stofnun til dagsins í dag. Myndin sýnir vel hve margt fólk hefur komið að uppbyggingu og viðhaldi félagsins og því sterka tengslaneti sem íslensk nýsköpunarsena byggir á og KLAK er stolt af að vera hluti af.

Við hjá KLAK – Icelandic Startups erum þakklát fyrir þann mikla stuðning sem KLAK hefur notið í gegnum árin og fögnum því að fá að deila þessum áfanga með þeim sem hafa verið hluti af ferðalaginu, hvort sem það var í gegnum verkefni, ráðgjöf, samstarf eða stuðning. Framtíðin er björt og við hlökkum til næstu 25 ára í þágu nýsköpunar. Við viljum einnig þakka þeim sem mættu í afmælið og gerðu daginn að því sem hann var, sannkallaðri veislu

en_GBEnglish (UK)