Vafrakökustefna KLAK (e. Cookie Policy)
- Almennt um vafrakökur
KLAK notar vafrakökur á vefsvæðinu til að tryggja sem besta upplifun og örugga virkni fyrir notendur.
Vafrakökur (cookies) eru litlar textaskrár sem vistaðar eru á tæki notanda þegar vefsíða er heimsótt. Þær eru notaðar til að tryggja virkni vefsíðu, bæta notendaupplifun og safna tölfræðilegum upplýsingum.
- Hvaða vafrakökur notum við?
Þegar þú skoðar vefsvæði okkar vistast oft vafrakökur á tölvunni þinni eða þeim búnaði sem þú notar við þá skoðun. Vafrakökurnar gera vefsvæðum okkar kleift að þekkja aftur tölvuna þína eða búnað og þjóna ýmsum tilgangi.
Á sumum vefsvæðum okkar mun birtast tilkynningarborði sem gerir þér kleift að samþykkja eða hafna vafrakökum. Þær tegundir vafrakaka sem vefsvæði okkar notar er m.a.:
- Nauðsynlegar vafrakökur sem eru til þess að gera notendum kleift að fara um vefsvæðið og nýta tiltekna virkni, t.d. innskráningu. Þessar vefkökur er ekki hægt að hafa óvirkar, enda myndi vefurinn ekki virka án þeirra.
- Afkastamælingakökur sem safna gögnum til að mæla og bæta afköst og virkni vefsvæðis.
- Virknikökur sem þjóna þeim tilgangi að geyma þær stillingar sem notandi hefur valið til að hafa áhrif á útlit eða virkni vefsins. Þú getur afþakkað slíkar kökur, en það kann að hafa áhrif á notendaupplifun þína af vefsvæðinu og þú gætir þurft að endurtaka tiltekið val í hvert skipti sem þú heimsækir síðuna.
- Markaðssetningarkökur eru notaðar til að koma á framfæri efni sem sniðið er að þínum áhugasviðum, draga úr endurtekningum í birtingu auglýsingaefnis og til að mæla virkni kynningar- og auglýsingaefnis.
Þrátt fyrir að flestir vafrar samþykki vafrakökur þá getur þú valið hvort þú samþykkir þær eða ekki með því að stilla það í vafranum. Þú getur einnig eytt vafrakökum úr búnaði þínum hvenær sem þér hentar. Rétt er þó að hafa í huga að sé vafrakökunotkun ekki samþykkt kunna sumir eiginleikar vefsvæðisins að verða óvirkir.
Annar hugbúnaður þriðja aðila kann að vera notaður á ákveðnum síðum á vefsvæði okkar á hverjum tíma til að tryggja virkni. Að jafnaði mun þessi búnaður koma fyrir vafraköku í tæki þitt til að auðvelda þér notkun þeirra og til að tryggja að samskipti birtist með réttum hætti á vefsíðum félagsins.
Vafrakökurnar sjálfar gefa hvorki upp netfang þitt né auðkenna þig á nokkurn annan hátt. Í greiningarskýrslum mun verða notast við aðra auðkenningarþætti eins og IP-tölu. Þetta er eingöngu ætlað til að greina fjölda einstakra gesta á vefsvæði okkar og landfræðilegan uppruna vefumferðar, en ekki til auðkenningar á hverjum notanda fyrir sig.
- Hafa samband
Athugasemdir eða fyrirspurnir um vafrakökur má senda á netfangið: [email protected]
Þessi vafrakökustefna kann að taka breytingum í samræmi við breytingar á lögum, tækni eða starfsemi vefsíðunnar. Uppfærð útgáfa verður birt á þessari síðu og tekur gildi við birtingu.
Síðasta uppfærsla: 27.1.2026.