Alþjóðleg heilbrigðisnýsköpun í brennidepli hjá KLAK

Samtal um malaríu, markaðsbresti og lausnir fyrir lönd með takmarkaðar auðlindir

Í lok mars tóku mentorar í KLAK – VMS á móti tveimur öflugum sérfræðingum í heilbrigðisnýsköpun, þeim Sveinbirni Gizurarsyni, prófessor við Háskóla Íslands, og Steven E. Kern, Ph.D., Fulbright sérfræðingi við Háskóla Íslands. Í sameiginlegum hádegisviðburði í Grósku var sjónum beint að því hvernig nýsköpun og tækni geta skilað raunverulegum áhrifum í löndum sem búa við takmarkaðar auðlindir – með sérstöku fókus á malaríulyf, innviði og fjármögnun.

Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við Íslensku Fulbright-stofnunina og er hluti af stuðningi þeirra við America 250 verkefnið. Því fylgdi sterkur alþjóðlegur vinkill þar sem tenging var gerð milli íslensks nýsköpunarumhverfis og umfangsmikilla verkefna á sviði alþjóðlegrar heilsu.

Verksmiðja fyrir malaríulyf í Malawi – „verkefni sem á skilið mun meiri athygli“

Í upphafi viðburðarins kynnti Sveinbjörn Gizurarson vinnuna við uppbyggingu malaríulyfjaverksmiðju í Malawi. Þar fór hann yfir sýn, hvatningu, markmið og helstu áskoranir verkefnisins – frá þörfinni á stöðugu aðgengi að lyfjum yfir í flókna innviði, regluverk og mannauð á staðnum.

Í umræðum á Íslandi hefur verkefninu verið lýst sem sannkölluðu flaggskipi sem á skilið miklu meiri athygli en það fær nú, og lögðu sérfræðingar sérstaka áherslu á að svona frumkvæði sýni vel hversu langt íslenskt hugvit og samstarf geta náð þegar horft er út fyrir hefðbundna markaði.

Fyrir mentora í VMS var þetta skýrt dæmi um hvernig handleiðsla, tengslanet og stefnumótandi stuðningur geta skipt sköpum þegar teymi takast á við verkefni sem eru bæði tæknilega, fjárhagslega og samfélagslega krefjandi.

„Bringing Innovation to Low Resource Countries“ – lærdómur úr Global Health Labs og Gates Foundation

Í framhaldinu tók við erindi Steven E. Kern, Ph.D., sem bar vinnutitilinn „Bringing Innovation to Low Resource Countries“. Steve er Fulbright sérfræðingur við Háskóla Íslands, fyrrverandi framkvæmdastjóri Global Health Labs og fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Bill & Melinda Gates Foundation, auk þess sem hann er dósent í svæfinga- og lífverkfræði við University of Utah.

Í erindinu dró hann upp mynd af tveimur svokölluðum „dalum dauðans“ í heilbrigðisnýsköpun. Annars vegar „Translational Valley of Death“, þar sem fjárfesting í því að koma frumhugmyndum í gegnum klínískar prófanir og framleiðsluskala er oft af skornum skammti. Hins vegar dalnum sem tengist heilbrigðisójöfnuði „Health Equity Valley of Death“, þar sem regluverk, veikburða heilbrigðiskerfi, birgðakeðjur og félagslegar aðstæður halda aftur af því að lausnir komist í raun til þeirra sem mest þurfa á þeim að halda.


Victor J. Ozau, MD\ Emily L Shambaugh, MPH1; Melissa H. Laitner, PhD, MPH1

Steve fór líka yfir hvers vegna hefðbundnir markaðir virka illa í low-resource umhverfi: lágar tekjur, veik dreifikerfi, upplýsingahalli og flóknir innkaupaferlar gera það að verkum að jafnvel mjög góðar lausnir ná ekki fótfestu án markvissrar íhlutunar. Þar kom sterkt inn, reynsla hans af því að nýta fjölbreytileg verkfæri í góðgaerðarstarfi – styrki, „program-related fjárfestingar“ og forkaupasamninga – til að „kveikja markaði“ og lækka áhættu svo frumkvöðlar og fjárfestar treysti sér inn á þessa markaði.

Dæmin sem hann sýndi á glærunum náðu vítt: allt frá nýjum lausnum í malaríulyfjagjöf fyrir vannærð börn, yfir í lyfjaform sem gera vikulegar eða mánaðarlegar töflur mögulegar til að bæta meðferðarheldni, til samvinnu í TB Drug Accelerator þar sem fyrirtæki, háskólar og stofnanir deila efnasöfnum og þekkingu til að hraða þróun nýrra berklalyfja. Einnig kynnti hann verkefni Global Health Labs á borð við NAATOS – einfalt, skalanlegt, ódýrt greiningarpróf „on-a-strip“ – og notkun gervigreindar og ómskoðunar til að gera áhættumat í meðgöngu aðgengilegra á heilsugæslustöðvum í lágauðlindaumhverfi.

Lærdómur fyrir mentora – og ný tenging inn í KLAK VMS

Í umræðum að loknu erindinu var sérstök áhersla lögð á hlutverk mentora þegar teymi horfa út fyrir Ísland og Evrópu og stefna inn á erfiða, alþjóðlega markaði þar sem viðskiptamódel, fjármögnun og samfélagsleg áhrif eru djúpt samtvinnuð. Fyrir mentorana í KLAK – Venture Mentoring Service var gagnlegt að sjá hvernig alþjóðleg verkefni á sviði heilbrigðistækni, greininga og lyfjaþróunar eru byggð upp í þrepum – með sterku neti samstarfsaðila, skýrum verkfærum til áhættuminnkunar og skýrum mælanlegum markmiðum.

Að sama skapi undirstrikaði heimsóknin mikilvægi þess að íslensk nýsköpun um heilbrigðistækni, lyf, greiningar og tengda innviði tengist snemma við reynslumikla aðila á borð við Steve og Sveinbjörn – bæði til að forðast algengar gryfjur og til að auka líkur á alvöru, varanlegum áhrifum.

Þakkir og framhaldið

Viðburðurinn er skýr áminning um að þegar íslenskt nýsköpunarsamfélag, alþjóðlegir sérfræðingar, háskólasamfélagið og góðgerðarsamtök leiða hesta sína saman, skapast einstök tækifæri til að þróa lausnir sem hafa raunveruleg áhrif á líf fólks, langt út fyrir landsteinana. Við viljum þakka Íslensku Fulbright-stofnuninni fyrir öflugt samstarf og stuðning sem hluta af America 250 verkefninu, Háskóla Íslands og Sveinbirni Gizurarssyni fyrir kraftmikla sýn í Malawi-verkefninu, og Steven Kern fyrir að deila dýrmætum lærdómi úr áratuga starfi á sviði alþjóðlegrar heilbrigðisnýsköpunar.

Fyrir mentora og teymi í KLAK – VMS er þessi heimsókn innblástur til að halda áfram að horfa út í heiminn með hugrekki, byggja upp lausnir sem standast alþjóðlegan samanburð og nýta samtal, handleiðslu og þekkingu til að breyta góðum hugmyndum í lausnir sem skipta raunverulegu máli.

KLAK – VMS er stutt af Háskólanum í Reykjavík, HØIBERG, Rannís, Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, ADVEL og KPMG.

en_GBEnglish (UK)

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.