Þann 15. apríl 2026 býður Klak – Icelandic Startups í Hringiðuhádegi í Ráðhúsi Reykjavíkur. Borgarstjóri opnar viðburðinn þar sem sprotafyrirtækin sem taka þátt í Hringiðu 2026 halda örkynningu um verkefni sín. Boðið verður upp á hádegismat.
Hringiða er viðskiptahraðall fyrir grænar lausnir og nýsköpunarfyrirtæki sem með einum eða öðrum hætti stuðla að sjálfbærni og betri nýtingu, huga að umhverfis- og/eða loftslagsmálum eða hafa hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins að leiðarljósi.
Komdu og fáðu innblástur frá framtíðarsýn frumkvöðla sem vinna að því að gera heiminn grænni!