Kaffi Krókur

Nýsköpun og ný tengsl- Sauðárkrókur

KLAK – Icelandic Startups, Íslandsstofa, Tækniþróunarsjóður og Vísindagarðar HÍ halda opinn kynningarfund á Sauðárkróki í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Norðlandi Vestra.

DAGSKRÁ:

Fjögur stutt og hnitmiðuð 15 mínútna erindi

– KLAK kynnir sín verkefni en félagið heldur úti metnaðarfullri dagskrá árið um kring fyrir einstaklinga með hugmyndir og fyrirtæki í vexti, þátttakendum að kostnaðarlausu.

– Tækniþróunarsjóður kynnir styrki fyrir nýsköpunarverkefni – frá hugmynd að markaði.

– Íslandsstofa segir frá aðgangi að alþjóðamörkuðum, erlendum fjármögnunartækifærum og hvernig byggja má upp öflugt tengslanet fyrir vöxt fyrirtækja.

– Vísindagarðar HÍ kynna stuðningsumhverfi sitt, nýsköpunarsamfélagið Mýrina og uppbyggingu nýs djúptækniseturs.

Að loknum erindum gefst góður tími fyrir spurningar, samtal og tengslamyndun. Tækifæri til að ræða eigin verkefni, fá ráðgjöf og tengjast beint fulltrúum stofnananna.

Fyrir hverja?
Viðburðurinn er opinn öllum og ókeypis – sérstaklega ætlaður þeim sem:
– eru með nýsköpunar- eða viðskiptahugmynd
– eru að stíga sín fyrstu skref
– eða vilja þróa verkefni sitt áfram og sækja á nýja markaði

Skráning: https://luma.com/b20ldglz

Viðburðurinn er partur af hringferðinni „Nýsköpun & Ný Tengsl“ sem skapar vettvang fyrir samtal, miðlun upplýsinga og tengslamyndun milli frumkvöðla, fyrirtækja og lykilaðila í nýsköpunarumhverfinu.

Viðburðurinn

Tengdir viðburðir

en_GBEnglish (UK)

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.