KLAK á lista Financial Times yfir fremstu stuðningsaðila nýsköpunar í Evrópu!

KLAK – Icelandic Startups fagnar því í dag að vera valið í hóp fremstu stuðningsaðila nýsköpunar í Evrópu. Við hjá KLAK höfum lengi vitað að starf okkar er á heimsmælikvarða en það er fyrst nú formlega staðfest með því að Financial Times og Statista velja KLAK á lista yfir „Europe’s Leading Start-up Hubs 2025“.

Á hverju ári framkvæmir Financial Times í samstarfi við Statista ítarlega greiningu á yfir 3.000 nýsköpunarmiðstöðvum í Evrópu og birtir lista yfir þær 150 sem fá hæstu einkunn. Það er gríðarlegur heiður að KLAK hafi verið valið á þennan lista og er staðfesting á því öfluga starfi sem KLAK vinnur til stuðnings frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum á Íslandi.

„Þetta er stór áfangi fyrir KLAK og íslenskt nýsköpunarumhverfi. Við höfum lagt okkur fram við að byggja upp sterkan vettvang fyrir frumkvöðla, og þessi viðurkenning er sönnun þess að við höfum náð góðum árangri. Það er ómetanlegt að fá slíka viðurkenningu frá jafn virtum alþjóðlegum aðila og Financial Times, og það hvetur okkur til að halda ótrauð áfram og efla starfið ennfrekar”
Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir
framkvæmdastjóri KLAK - Icelandic Startups

KLAK hefur síðastliðin 25 ár unnið ötullega að því að efla sprotaumhverfið á Íslandi með ýmsum hætti. Verkefni á borð við Gulleggið, Startup Supernova, Startup Tourism, Hringiðu og Dafna hafa hjálpað ótal frumkvöðlum að taka næstu skref á sinni vegferð og jafnvel út fyrir landsteinana. 

Við erum afar þakklát öllum þeim sem hafa stutt við starfsemi okkar og hlökkum til að halda áfram að ryðja brautina fyrir næstu kynslóð sprotafyrirtækja á Íslandi!

en_GBEnglish (UK)