Tækifæri fyrir íslensk sprotafyrirtæki í öflugu sprotaumhverfi Evrópu
KLAK – Icelandic Startups vekur athygli á Maria 01 NOW – International Pitching Competition 2026 sem fer fram 2.-4. júní 2026 í Helsinki. Þar safnast saman frumkvöðlar, fjárfestar og sérfræðingar úr einu stærsta og kraftmesta sprotaumhverfi Evrópu.
Í samstarfi við Maria 01 fáum við að tilnefna allt að fimm íslensk sprotafyrirtæki sem fara beint inn í keppnina og pitcha á viðburðinum.

Um keppnina
- Pitchdagurinn fer fram 2. júní 2026 á Maria 01, „The Nordics’ Leading Startup Campus“, þar sem sprotafyrirtæki kynna lausnir sínar fyrir dómnefnd fjárfesta, fjölmiðlafólks og sérfræðinga.
- Keppnin er „industry agnostic“ og opin frumkvöðlateymum á mismunandi stigum, frá early-stage upp í sprota á leið í frekari vöxt.
- júní – BSV Investor Deep Tech Day
- júní – Builders & Community Day með fyrirlestrum, tengslamyndun og hinu einstaka Maria 01 Yard Party.
Af hverju að taka þátt?
Fyrir sprotafyrirtæki sem vilja auka sýnileika sinn og tengjast norræna sprota- og fjárfestavettvangnum býður Maria 01 NOW upp á meðal annars:
- Tækifæri til að pitcha á alþjóðlegum vettvangi í Helsinki
- Sýnileika gagnvart fjárfestum og lykilaðilum úr atvinnulífinu
- Endurgjöf frá reynslumikilli dómnefnd og sérfræðingum
- Pitch-coaching og markvissa tengslamyndun yfir þrjá daga
- Möguleika á vinningum eins og miðum á Slush 2026 and Arctic15
Þátttaka í keppninni er án þátttökugjalds, en fyrirtækin bera sjálf ferðakostnað.
Hverjir geta sótt um?
- Skráð sprotafyrirtæki sem geta mætt á staðinn til Helsinki
- Teymi sem eru að byggja upp lausnir með alþjóðlega möguleika og vilja:
- auka sýnileika sinn
- hitta fjárfesta og samstarfsaðila
- prófa sig á alþjóðlegum pitch-vettvangi
Keppnin er ekki bundin við eitt svið heldur leitum við að fjölbreyttum, metnaðarfullum teymum með skýra framtíðarsýn.
Umsóknarfrestur og tilnefningar frá KLAK
Formlegur umsóknarfrestur hjá Maria 01 er 31. mars 2026.
Sem samstarfsaðili fáum við þó 7 daga auka frest til að tilnefna íslensk sprotafyrirtæki sem fara sjálfkrafa inn í keppnina.
Ef þú ert stofnandi eða í teymi hjá sprotafyrirtæki og vilt koma til greina í tilnefningu frá KLAK, endilega sendu okkur stuttan tölvupóst þar sem kemur fram:
- Heiti fyrirtækis
- Stutt lýsing á lausn og markaði (3–5 línur)
- Stig fyrirtækisins (t.d. pre-seed, seed, early revenue)
- Hvers vegna þið viljið taka þátt í Maria 01 NOW
Sendið okkur póst á: [email protected]
KLAK mun síðan fara yfir innsendar umsóknir, velja allt að fimm teymi til tilnefningar.
Þetta er frábært tækifæri fyrir íslensk sprotafyrirtæki til að stíga næsta skref út á alþjóðlegan vettvang, byggja tengsl og hraða næsta kafla í vexti fyrirtækisins.