Ný stjórn tekur til starfa hjá KLAK – Icelandic Startups

Nýir stjórnarmeðlimir munu leiða áframhaldandi uppbyggingu á sterku og hvetjandi nýsköpunarumhverfi á Íslandi.

Ný stjórn KLAK – Icelandic Startups hefur formlega tekið til starfa og mun hún leiða framtíðarsýn félagsins við að efla íslenskt frumkvöðla- og nýsköpunarumhverfi. KLAK – Icelandic Startups er óhagnaðardrifið félag í eigu Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Skyggnis, Nýsköpunarsjóðsins Kríu og Samtaka iðnaðarins og hefur skipað sér sess sem lykilaðili í stuðningsumhverfi nýsköpunar hér á landi.

Hrönn Greipsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu, gegnir áfram hlutverki stjórnarformanns KLAK – Icelandic Startups. Varaformaður stjórnar er Oddur Sturluson, verkefnastjóri nýsköpunar hjá Háskóla Íslands.

Auk þeirra sitja í stjórninni:

  • Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri tækni- og hugverkaiðnaðar hjá Samtökum iðnaðarins.
  • Hrafntinna Viktoría Karlsdóttir, verkefnastjóri atvinnulífstengsla og sjálfbærni hjá Háskólanum í Reykjavík.
  • Kristín Gestsdóttir, mannauðsstjóri hjá Origo.
Ný stjórn ásamt Ástu Sóllilju Guðmundsdóttur, Framkvæmdarstjóra KLAK

Þessi skipan endurspeglar sterkt samstarf helstu stoða nýsköpunarumhverfisins – háskólasamfélagsins, iðnaðarins og fjárfestinga í hugviti. Ný stjórn mun styðja við áframhaldandi vöxt KLAK – Icelandic Startups, meðal annars með þróun viðskiptahraðla, handleiðslu og fjölbreyttra verkefna fyrir sprotafyrirtæki á öllum stigum.

„KLAK – Icelandic Startups gegnir lykilhlutverki í að hjálpa frumkvöðlum að raungera hugmyndir sínar, byggja upp sjálfbæra verðmætasköpun og tengja íslensk sprotafyrirtæki við sterkt net sérfræðinga og fjárfesta,“ segir Hrönn Greipsdóttir, stjórnarformaður. „Það er mikill kraftur í nýrri stjórn og við hlökkum til að vinna saman að því að efla frumkvöðlastarfsemi enn frekar.“

Með störfum nýrrar stjórnar er haldið áfram að byggja upp samheldið og öflugt vistkerfi nýsköpunar þar sem frumkvöðlar fá aðgang að þeim stuðningi, þekkingu og tengslum sem hraða vexti og auka líkur á árangri.

en_GBEnglish (UK)

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.