
Hvað er Snjallræði?
Snjallræði er 16 vikna vaxtarrými (e. incubator) sem styður við öflug teymi sem brenna fyrir lausnum á áskorunum samtímans og styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Það geta verið lausnir sem snúa að heilbrigðisþjónustu, velferðartækni, bættu menntakerfi og jafnréttismálum, svo dæmi séu tekin.
Snjallræði var stofnað af Höfða friðarsetri árið 2018 og hefur verið keyrt þrisvar frá upphafi. Vaxtarrýmið er í umsjá KLAK, í samstarfi við MIT designX, og er þungamiðja þess vinnustofur þar sem að sérfræðingar frá MIT koma til landsins og deila þekkingu sinni. Þátttakendur fá aðgang að fræðslu og þjálfun frá innlendum og erlendum sérfræðingum á sviði samfélagsmála og nýsköpunar og fundi með reyndum mentorum.
Markmið vaxtarrýmisins er að ýta undir nýsköpun sem tekst á við áskoranir samtímans og er þannig mikilvægur vettvangur fyrir samfélagssprota. Áhersla er á að ýta undir sjálfbærni í nýsköpun og byggja upp sprota sem styðja með beinum hætti við eitt eða fleiri af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna allt frá fyrstu skrefum.
Hvað er samfélagsleg nýsköpun?
Samfélagsleg nýsköpun felst í því að nýta aðferðafræði nýsköpunar og hönnunarhugsun til þess að tækla samfélagslegar áskoranir og byggja upp kerfi og lausnir sem fela í sér ávinning fyrir fólk og umhverfi og þar af leiðandi fyrir samfélagið í heild.
Á þín hugmynd heima í Snjallræði?
- Snjallræði styður við teymi sem leggja sjálfbærni til grundvallar í sinni kjarnastarfsemi og vilja leiða mikilvægar samfélagsbreytingar.
- Tekið er á móti nýsköpun á öllum stigum, frá ferskum hugmyndum til þróaðra nýsköpunarverkefna og fyrirtækja.
- Snjallræði er opið fyrir fjölbreytt teymi, frjáls félagasamtök og fyrirtæki sem vilja fá tækifæri til þess að þróa eigin hugmyndir áfram og finna þeim sjálfbæran farveg.
Hvað getur Snjallræði boðið ykkur?
- 16 vikna prógram í samstarfi við MIT designX
- Aðgang að tengslaneti og ráðgjöf frá öflugum hópi mentora og sérfræðinga á sviði samfélagsmála, heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna og nýsköpunar
- Aðstöðu í Grósku, suðupotti nýsköpunar í Vatnsmýrinni
- Þjálfun frá erlendum og innlendum sérfræðingum í samfélagslegri nýsköpun, m.a. frá
- MIT, Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík, Listaháskóla Íslands og Reykjavíkurborg
Hvað færðu út úr þátttöku í Snjallræði?
Teymin sem taka þátt í Snjallræði fá að taka þátt í fjórum tveggja daga vinnustofum hér á landi á vegum Svöfu Grönfeldt og samstarfsfélaga hennar frá MIT designX. Vinnustofurnar fara fram á fjögurra vikna fresti en þess á milli njóta teymin handleiðslu færustu sérfræðinga hér á landi við að þróa lausnirnar áfram. Vinnustofurnar eru þemaskiptar og taka á mismunandi þáttum í þróunarferlinu, allt frá þarfa- og hagaðilagreiningu, hönnun á sjálfbæru viðskiptamódeli, furumgerðarksöpun og fjárhagsáætlunum yfir í tengslamyndun og framkomu.
Sprotar
8 teymi tóku þátt í Snjallræði 2021.

Bambahús
Greenhouses made from IBC tanks immediately address recycling, innovation, value creation, business development, sustainability, nutrition, suitable for all crops. Durable and maintenance-free.

Comas
The Homegrow project by COMAS is a platform for teaching and connecting citizens to grow and produce food together with ICT systems.

HEIMA
HEIMA is an equality driven mobile app that organises and divides household work and mental load.

Tech-friend
Tech-friend is a service that aims to connect the elderly, who need technical assistance with technologically capable young people (tech-friends) who can provide that support.

WULL Project
WULL Project uses low-quality wool that otherwise leaves no value for sheep farmers and by embracing the wool’s natural qualities the WULL Project turns it’s “flaws” into strengths.

SoGreen
The project aims at bridging the gap between companies, looking to offset their carbon footprint by investing in projects that reduce emissions, and organizations seeking funding for projects that ensure girls’ education.

Electra
Electra’s mission is to revolutionise service for individuals that struggle with addiction with the use of software. Electra encourages, guides and supports individuals before and after treatment and increases their chance of long term healing.

Greenfo
Greenfo is developing software which is the roadmap for companies towards sustainablity, maps their carbon footprint and lets them take meaningful action to reduce it, by simplifying and utilizing information already available at every company.
Fyrirkomulag
Dagskrá Snjallræðis fer fram aðra hvora viku. MIT designX vinnustofurnar eru fjórar talsins, eða einu sinni í mánuði. Á milli vinnustofanna verða Háskólinn í Reykjavík, Háskóli Íslands og Listaháskóli Íslands með vinnusmiðjur. Auk þess hitta þátttakendur mentorana fjórum sinnum yfir tímabilið og taka þátt í ýmsum viðburðum.
25- 26. ágúst: Understand
Hvaða vandamál er verið að leysa og hver mun njóta góðs af lausninni?
Áhersla lögð á:
- Þarfagreiningu (e. Needs analysis)
- Markaðskönnun (e. Market segmentation)
- Hagaðilagreiningu (e. Stakeholder map)
- Afbyggingu (e. Deconstruction)
22. – 23. september: Solve
Hver er lausnin og hver er ávinningurinn af henni fyrir hagaðila ?
Áhersla lögð á:
- Hönnun markmiðs (e. Mission design)
- Virði lausnarinnar (e. Value proposition)
- Ferðalag notandans (e. User journey)
- Hraða úrvinnslu á fyrstu frumgerð (e. Rapid prototyping)
21- 22. október: Envision
Hverju viljum við ná fram og hvaða gildi liggja til grundvallar við ákvarðanatöku?
Áhersla lögð á:
- Að hanna framtíðarsýn (e. Vision design)
- Gildi stofnenda og stofnsamninga (e. Founder’s values / negotiations)
- Sjálfbær viðskiptamódel
- Fólk og samstarfsaðila
16. – 17. nóvember: Execution
Hvernig er best að hrinda lausninni í framkvæmd, skala hana og fjármagna?
Áhersla lögð á:
- Aðgerðaráætlun
- Fjárhagsáætlun
- Fjármögnun
- Söguna og pitch-ið
Mentorar

ÖRN VIÐAR SKÚLASON
Fjárfestingastjóri Nýsköpunarsjóðs

Erik Figueras Torras
Framkvæmdastjóri símans

Dagný Jónsdóttir
Deildarstjóri Auðlindagarðs HS Orku

Anna Signý Guðbjörnsdóttir
UX Researcher & Service Designer @ Kolibri

Karl Guðmundsson
Forstjóri Florealis ehf.

Frosti Sigurjónsson
Fjárfestir

Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir
Viðskiptaþróunar- og fjármálastjóri Auðnu Tæknitorgs ehf

Bárður Örn Gunnarsson
Framkvæmdatjóri Svartitindur ehf.

Sigurjón Þórðarson
Human Resource Business Partner - CCP

Gestur R. Bárðarson
Framkvæmdastjóri/eigandi Punktur ehf

Hanna Kristín Skaftadóttir
Fagstjóri Viðskiptagreindar Háskólinn á Bifröst

Anna Margrét Guðjónsdóttir
Stofnandi & framkvæmdastjóri Evris ehf.

Halla Helgadóttir
Framkvæmdastjóri - Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs

Gunnlaugur Árnason
CMCO - Sidekick

Heiða Kristín Helgadóttir
Framkvæmdarstjóri Niceland SEafood

Ágúst Freyr Ingason
Vertu ehf
Stýirhópur

Svafa Gröndfeldt
MIT

Auður Örlygisdóttir
Höfði friðarsetur

Pia Hanson
HÖFÐI FRIÐARSETUR

Hulda Hallgrímsdóttir
Reykjavíkurborg

Magnús Þór Torfason
Háskóli Íslands

Thomas Pausz
Listaháskóli Íslands

Hallur Þór Sigurðsson
Háskólinn í Reykjavík

Hrund Gunnsteinsdóttir
Festa - miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni

Gunnar Sveinn Magnússon
Deloitte

Dóra Björk Þrándardóttir
Landsvirkjun
