Dagana 19. og 20. júní stöndum við hjá KLAK – Icelandic Startups í samstarfi við Nova og Huawei fyrir Superclass, tveggja daga viðburði þar sem frumkvöðlar fá einstaka innsýn, hagnýta þekkingu og stuðning til að taka næstu skref í sínu sprotaferðalagi.
Viðburðurinn er ókeypis og opinn öllum sprotum, en sérstaklega mikilvægur fyrir þá sem ætla að sækja um í
🕓 Umsóknarfrestur í hraðalinn rennur út 18. júní!
Schedule
📅 Dagskrá – 19. júní
Kynning og setning viðburðarins
Jenna Björk Guðmundsdóttir og Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir frá KLAK fara yfir dagskrá Superclass, hraðalinn og VMS-mentorumhverfið sem styður við teymin í gegnum ferlið.
Hugarfar fjárfesta – hverju leita þau að?
Andri Heiðar Kristinsson frá Frumtak Ventures deilir dýrmætri innsýn í hvernig fjárfestar hugsa, hvaða væntingar þau hafa og hvað ber að forðast.
Virðistilboð í verki
Workshop með Elfu Arnardóttur frá Nova þar sem þátttakendur vinna með sín virðistilboð og móta skýra nálgun gagnvart sínum markhópi.
Building Your A-Team
Harpa Magnúsdóttir frá Hoobla fjallar um hvernig á að forgangsraða ráningum, móta góða teymismenningu og mannauðsstefnu næstu 18 mánuði.
Action Plan & Pitch Deck Workshop
Liðsmenn KLAK aðstoða sprotateymi við að móta sterkt verkplan og kynningargögn fyrir hraðalinn.
Ask-Me-Anything – Orðið er þitt
Opinn spjallhringur með Hjálmari Gíslasyni, stofnanda Grid – frábært tækifæri til að spyrja og læra!
📅 Dagskrá – 20. júní
Fjármögnun og fjármál sprota
Lærðu að búa til raunhæfa fjárhagsáætlun – fjárstreymi, rekstrarkostnaður og lykiltölur sem skiptir máli.
Ýmir Örn Finnbogason fer yfir helstu áherslur í þessum mikilvægu málefnum.
Að byggja fyrirtæki framtíðarinnar
Tækniþróun á ofurhraða: AI, 6G og umbreytingar. Hvernig tryggjum við viðveru og viðnámsþol í breytilegu umhverfi?
Fyrirlesarar: Dr. Xueli An (Huawei) og Magnús Ingi Óskarsson (KLAK)
Næstu skref
Hópavinna með leiðsögn frá KLAK þar sem sprotateymi setja sér mælanleg markmið og móta 18 mánaða vaxtarstefnu fyrir umsókn í hraðalinn.
Fjármögnun sprota – umbúðarlaus umræða
Alma Dóra Ríkharðsdóttir (Heima), Kristján Ingi Mikaelsson (MGMT Ventures) og Andri Heiðar Kristinsson ræða fjármögnunarferð Heima – hvernig þeir náðu yfir 1 milljón USD í fjármögnun og hver lærdómurinn var frá öllum hliðum borðsins.
Open Mic & Happy Hour
Við ljúkum þessu með stæl – opin umræða, tengslamyndun og drykkir til að fagna frábærum dögum!
🕓 Umsóknarfrestur í hraðalinn rennur út 18. júní!