Superclass Startup SuperNova lagði línurnar fyrir næstu skref

Tveggja daga Superclass námskeið fór fram dagana 19. – 20. júní og gaf öflugum sprotateymum innsýn frá fremstu sérfræðingum landsins í nýsköpun. Markmiðið? Að byggja traustan grunn fyrir næstu skref í vexti, fjármögnun og þróun – með hagnýta leiðsögn, tengslanet og innblástur í farteskinu.

Námskeiðið er órjúfanlegur hluti af undirbúningi fyrir Startup SuperNova hraðalinn og var sett upp af KLAK – Icelandic Startups í samstarfi við Nova og Huawei. Superclass snýst um að efla frumkvöðla til að skapa öflug teymi, skýra stefnu og laða til sín rétta fjárfesta.

Tveir dagar af fyrirlestrum, tengslamyndun og þekkingu

Dagur eitt hófst með yfirferð frá Jennu Björk Guðmundsdóttur og Ástu Sóllilju Guðmundsdóttur hjá KLAK, sem lýstu ferðalaginu fram undan – frá Superclass og að hraðlinum sjálfum.

Andri Heiðar Kristinsson frá Frumtak Ventures afhjúpaði hvernig fjárfestar hugsa og hverju þeir leita að í ferðalagi frumkvöðla áður en Elfa Arnardóttir frá Nova leiddi teymin svo í hagnýta vinnustofu þar sem teymin ítruðu virðistilboð sín og aðgreiningu. Harpa Magnúsdóttir frá Hoobla var með kraftmikla framsögu um teymis uppbyggingu, og loks vann KLAK með teymunum við að þróa kynningarefni og aðgerðaráætlanir. 

Dagurinn endaði með samtali við Hjálmar Gíslason, stofnanda GRID – þar sem teymin fengu að spyrja opinna spurninga þar sem engar spurningar voru óviðeigandi eða rangar og komu teymin með spurningar sem spönnuðu allt frá fyrsta teyminu í tilfinningalega áskorun þess að tilkynna fjárfestum um að fjárfestingin þeirra væri misheppnuð.

Framtíðarsýn, fjármál og fjármögnun

Á degi tvö lagði Ýmir Örn Finnbogason grunn að fjármálavitund sprota með 5 stöpplum fjármálastjórans. Þá tóku við fyrirlestrar frá Dr. Xueli An hjá Huawei og Magnúsi Inga Óskarssyni frá KLAK um tæknistefnur framtíðarinnar og áhrif þeirra á sprota.

Teymin tóku svo stökk fram á við með 18 mánaða viðskiptaáætlun, unnin með handleiðslu KLAK. Viðburðinum lauk svo með kraftmiklu samtali um fjármögnun Heima, þar sem Alma Dóra Ríkharðsdóttir, Kristján Ingi Mikaelsson og Andri Heiðar Kristinsson deildu reynslu sinni af því að tryggja yfir 1 milljón USD í fjármögnun.

Hvað tekur við?

Næstu skref eru ekki síður spennandi. Teymin hafa nú til 29. júní til að skila inn umsóknum í sjálfan Startup SuperNova hraðalinn. Þar verða valin allt að tíu teymi sem fá inngöngu í hraðalinn, sem hefur markvisst hjálpað frumkvöðlum að taka hugmyndir sínar skrefinu lengra og nær því að verða að næstu sprengistjörnu!



en_GBEnglish (UK)

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.