
Miðvikudaginn 15. Apríl fór Hringiðuhádegi fram í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem sjö sprotar sem taka þátt í Hringiðu kynntu lausnir opinberlega í fyrsta skipti síðan að hraðalinn hófst. Fjöldi gesta mætti og fengu tækifæri til að kynnast framtíðarsýn sprotana á meðan þeir gæddu sér á ljúffengum hádegisverði í hjarta höfuðborgarinnar.
Alexandra Briem, formaður borgarráðs Reykjavíkur, opnaði viðburðinn og talaði um mikilvægi þess að borgin styðji við nýsköpun og grænar lausnir. Reykjavíkurborg hefur frá upphafi verið bakhjarl Hringiðu og samstarfið borgarinnar og KLAK hefur verið lykilþáttur í að gera hraðalinn að veruleika.
Teymin sjö eru enn á frumstigi og hafa aðeins verið í hraðlinum í tvær vikur af sex. Þau kynntu verkefnin sín með örkynningum og vöktu athygli með fjölbreyttum lausnum sem stuðla að sjálfbærni og umhverfisvernd.
Teymin eru:
- Araxni, sem framleiðir líftæknibúið köngulóarsilki í stað plasts;
- E-LÍSA, hugbúnaðarlausn sem hámarkar orkuvinnslu í jarðvarmaþróun;
- IORDEN, sjálfvirkur gæðastjóri fyrir matvælaframleiðendur;
- Loopable, sem tætir ónýtan textíl og breytir honum í hágæða prjónagarn;
- Ratatag, QR-kóðakerfi sem tengir saman eigendur og finnendur týndra muna;
- Soil Lagoon, sem áformar fyrstu jarðvegshreinsistöð Íslands
- Thermal Beets Records, sem framleiðir sjálfbærar vínylplötur úr sykurrófum í stað PVC-plasts.










Um Hringiðu
Hringiða er sex vikna viðskiptahraðall sem sniðinn er að þörfum sprotafyrirtækja með grænar lausnir. Markmið Hringiðu er að á Íslandi rísi öflug fyrirtæki sem vinna að grænum lausnum og skapa verðmæt og áhugaverð störf sem skila árangri í umhverfis- og loftslagsmálum á Íslandi
Bakhjarlar Hringiðu eru: Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Orkuveitan, Reykjavíkurborg, Faxaflóahafnir, Terra, og Samtök iðnaðarins.






























































