Glæsileg uppskeruhátíð Dafna 10 í Sykursalnum

KLAK – Icelandic Startups hélt nýverið uppskeruhátíð í tilefni þess að vaxtarrýminu Dafna lauk í tíunda sinn. Viðburðurinn fór fram í Sykursalnum þar sem öflug teymi úr Dafna 10 stigu á svið, kynntu verkefni sín og sögðu frá þeim árangri sem þau hafa náð frá því þau hlutu styrk úr Tækniþróunarsjóði.

Að kynningunum loknum sköpuðust líflegar umræður og fengu fulltrúar Tækniþróunarsjóðs og aðrir gestir tækifæri til að spyrja nánar út í þær fjölbreyttu nýsköpunarlausnir sem teymin vinna að. Viðburðinum lauk með tengslamyndun og samtali yfir léttum veitingum.

Fjárfestar, frumkvöðlar og fulltrúar víða úr íslensku nýsköpunarumhverfi fjölmenntu á viðburðinn. Góð stemning ríkti í Sykursalnum enda teymin í tíunda hópi Dafna afar frambærileg og lausnir þeirra líklegar til að skapa fjölbreytt tækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf og samfélag.

Fjögurra mánaða vaxtarrými fyrir styrkþega

Dafna er vaxtarrými (e. incubator) sem rekið er af KLAK í samstarfi við Tækniþróunarsjóð og hefur verið starfrækt frá árinu 2021 en frá því að verkefnið hófst hafa yfir 500 frumkvöðlar og 250 sprotafyrirtæki tekið þátt. Verkefnið stendur teymum sem hljóta Sprota- eða Vaxtarstyrk úr Tækniþróunarsjóði til boða og er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Dafna samanstendur af gagnvirkum vinnustofum, hagnýtum verkefnum og markvissri mentoraráðgjöf. Í vinnustofunum er meðal annars fjallað um viðskiptaþróun, markaðssetningu, vöruþróun og aðra lykilþætti í uppbyggingu sprotafyrirtækja.

Hvert teymi fær þrjá reynda mentora til liðs við sig sem fylgja því eftir á tímabilinu. Mentorarnir veita teymunum ráðgjöf, aðhald og aðgang að mikilvægri reynslu og tengslaneti. Fyrirkomulagið er byggt á aðferðafræði MIT Venture Mentoring Service við Massachusetts Institute of Technology og hafa allir mentorar sem taka þátt hlotið þjálfun í samræmi við það.

Markmið Dafna er að veita frumkvöðlum verkfæri, viðskiptaþekkingu og stuðning sem þarf til að koma verkefnum á næsta stig. Þannig stuðlar verkefnið að því að styrkir Tækniþróunarsjóðs nýtist sem best og eykur líkur á að nýsköpunarverkefni nái árangri til lengri tíma.

„Við hjá KLAK erum afar stolt af Dafna og því góða samstarfi sem hefur byggst upp við Tækniþróunarsjóð. Frumkvöðlarnir sem taka þátt búa yfir mikilli sérþekkingu og öflugum hugmyndum. Með markvissri fræðslu, handleiðslu reyndra mentora og tengslum við atvinnulífið hjálpar Dafna þeim að byggja sterkari fyrirtæki og komast hraðar og öruggar áfram. Tíundi hópurinn sýnir vel þann mikla kraft sem býr í íslensku nýsköpunarumhverfi,“ segir Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups.

Um KLAK – Icelandic Startups

KLAK – Icelandic Startups er óhagnaðardrifið félag sem vinnur að því að efla íslenskt nýsköpunarumhverfi. KLAK styður frumkvöðla og sprotafyrirtæki með fjölbreyttum viðskiptahröðlum og vaxtarrýmum, mentoraráðgjöf, fræðslu og öflugu tengslaneti. Markmiðið er að hjálpa hugmyndum og fyrirtækjum að vaxa og ná árangri, bæði á Íslandi og á alþjóðlegum mörkuðum.

en_GBEnglish (UK)

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.