Þann 21. október næstkomandi gangsetjum við hjá KLAK – Icelandic Startups öðru sinni viðskiptahraðalinn KLAK health sem styður við frumkvöðla og sprotafyrirtæki í heilsutækni. Hraðalinn má hugsa sem námskeið í hvernig eiga að stofna, reka og efla sprotafyrirtæki. Markmið hans er að hraða þróunarferlinu umtalsvert á þeim fimm vikum sem hraðallinn stendur yfir og koma frumkvöðlum í tengsl við hugsanlega samstarfsaðila, viðskiptavini og fjárfesta.
KLAK health er nýjasti viðskiptahraðallinn okkar og frá því að við keyrðum hann fyrst í fyrra höfum við átt fjölda samtala við frumkvöðla og aðila úr nýsköpunarumhverfinu. Af þeim samtölum höfum við dregið mikinn lærdóm, en það sem situr þó sérstaklega eftir er að fjöldi frumkvöðla átti erindi í hraðalinn án þess að gera sér grein fyrir því. Ástæðan fyrir þessu er skilningur á hvað felst í orðinu “heilsutækni”. Hér í framhaldi ætla ég að gera mitt besta til að útskýra hver skilgreiningin á heilsutækni er frá okkar sjónarhorni, hvaða lausnir eiga erindi í viðskiptahraðal fyrir heilsutækni og á hvaða stigi lausnin getur verið á til að nýta sér KLAK health.
En hvað er heilsutækni?
Heilsutækni er í grunninn hvers kyns lausn sem nýtir tækni eða hugvit til að bæta heilsu fólks eða vellíðan. Aðilar sem vinna að slíku markmiði falla undir skilgreiningu okkar á “sprota í heilsutækni”. Lausnir geta því komið úr fjölbreyttum áttum en við skiptum þeim gróflega í fjóra flokka þegar kemur að KLAK health. Í fyrsta lagi nýsköpun í lækningatækni (e. MedTech) á borð við lækningatæki, greiningarbúnað, lausnir sem snúa að ígræðslu og einnig hugbúnað sem telst til lækningatækja. Í öðru lagi getur það verið nýsköpun í líftækni eða lyfjaþróun (e. BioTech & Pharma). Lausnir á borð við líftæknivörur, lyfjaþróun og lausnir sem styðja við fyrirtæki í þeim geirum. Í þriðja lagi eru það stafrænar heilsulausnir (e. Digital Health). Það eru lausnir sem byggja meðal annars á hugbúnaði, gögnum og gagnavinnslu, veflausnir, öpp og alls kyns lausnir tengdar snjalltækjum. Í fjórða lagi eru það neytendalausnir (e. Consumer health) en þar falla undir lausnir tengdar forvörnum, vellíðan, geðheilbrigði og margs konar lífstílsslausnir. Þessi upptalning er ekki tæmandi listi, ef þú ert með hugmynd að lausn eða vinnur að lausn sem bætir heilsu fólk þá átt þú erindi í KLAK health.
Fyrir hver er KLAK health?
Við erum einnig oft spurð hversu langt í ferlinu umsækjandi KLAK health þarf að vera kominn til að geta nýtt sér hraðalinn, hvenær hann er of skammt á leið kominn í þróunarferlinu og hvenær of langt? KLAK health er ætlaður frumkvöðlum sem eru snemma í þróunarferlinu, allt frá þeim sem eru með fullmótaða hugmynd upp í teymi sem hafa þegar komið vöru á markað og leita nú leiða til vaxtar.
Ef þú ert með hugmynd í þróun, ef þú ert að sjóða saman frumgerð heima í bílskúrnum, ef þú ert starfsmaður hjá fyrirtæki í heilsutækni sem sér tækifæri á markaði, ef þú ert rannsakandi sem getur hagnýtt rannsókn þína og stofnað fyrirtæki, eða ef þú hefur smíðað app sem styður við heilsu fólks, þá hvetjum við þig eindregið til að sækja um í KLAK health.
Kynntu þér hraðalinn nánar í kynningarmyndbandinu hér að neðan, hægt er að sækja um á www.klak.is/health.
Umsóknarfrestur er út 4.október og ef einhverjar spurningar vakna er þér velkomið að senda tölvupóst á [email protected].
Bakhjarlar KLAK health eru Landspítali, Heilbrigðisráðuneytið, Íslandsbanki, Helix, Securitas, Heilsuvernd, Lifa VC, Össur, Nox Medical, Frumtök og Lyfja.