Í þessari viku hefst TINC viðskiptahraðallinn með kynningardögum í Ósló. TINC er sex vikna hraðall sem þróaður er af Innovation Norway og rekinn í samstarfi við Vinnova, Business Finland og KLAK – Icelandic Startups.
Dagskráin hefst nú með kynningardögum í Ósló, heldur áfram með fjarfundum í haust og lýkur með viðamikilli dagskrá í Kísildalnum í nóvember. Þar er þátttakendum veittur aðgangur að sérfræðingum og fjárfestum úr einu samkeppnishæfasta nýsköpunarumhverfi heims. Lögð er áhersla á að skerpa á vörumarkaðssamræmi, viðskiptamódelum og vaxtarmöguleikum. En alls hafa 278 norræn tæknifyrirtæki þegar farið í gegnum hraðalinn.
Að þessu sinni taka Sea Thru og Unnur verk þátt fyrir Íslands hönd. En hraðallinn hefur reynst íslenskum frumkvöðlum einstaklega vel. Með þátttöku er ekki aðeins boðið upp á dýrmæta handleiðslu, heldur er einnig byggt upp öflugt tengslanet á milli norrænna frumkvöðla. Þátttakendum er tryggður aðgangur að mentorum, fjárfestum og samstarfsaðilum í Kísildal sem annars gæti reynst erfitt að nálgast á eigin vegum.
Sýnt hefur verið fram á mikilvægi þessa vettvangs með árangursríkri þátttöku íslenskra fyrirtækja á borð við uiData og PLAIO, sem hafa bæði deilt reynslu sinni með íslenska sprotasamfélaginu. Bent er á að stærsta hindrunin fyrir íslensk sprotafyrirtæki sé oft ekki hugmyndin sjálf, heldur leiðin á erlenda markaði. Með þátttöku í TINC er teymum veittur greiður aðgangur að alþjóðamarkaðnum og dýrmætum samböndum
Við hlökkum til að fylgist með í vetur þegar Sea Thru og Unnur verk feta sig í gegnum hraðalinn.