Gleipnir Life Center

Yfir 80% þeirra próteina sem valda alvarlegum sjúkdómum, svo sem mörgum tegundum krabbameina og taugahrörnunarsjúkdóma, eru talin ólæknandi (e. undruggable) með hefðbundnum lyfjum. Gleipnir Lífsmiðja er líftæknifyrirtæki sem ræðst að þessum vanda með sínum einstaka SKÍRNIR skimunarvettvangi. Í stað þess að leita að lyfinu sjálfu notar SKÍRNIR hönnunarlíffræði (e. synthetic biology) í gerfrumum til að svara fyrstu og mikilvægustu spurningunni: Hvaða tvö prótein á að „líma“ saman til að gera sjúkdómspróteinið óvirkt?

Þessi nálgun breytir lyfjaleit úr dýrri og handahófskenndri leit í markvisst og kerfisbundið ferli. Hún sparar lyfjafyrirtækjum mikinn tíma í þróunarvinnu og dregur verulega úr áhættu og kostnaði. Markmið Gleipnis Lífsmiðju er að verða leiðandi alþjóðlegur samstarfsaðili í uppgötvun á nýjum meðferðum og flýta þannig fyrir þróun svokallaðra sameindalímslyfja (e. molecular glue drugs) gegn sjúkdómum sem hingað til hafa verið taldir ólæknandi.

Gleipnir Life Center

Related shoots

We use cookies 🍪

We use cookies to improve your experience, analyze site usage, and support the continued development of our services. By clicking "Accept All", you consent to their use.