Happy Hour Gulleggsins fyrir norðan

Kynningarviðburður Gulleggsins fór fram í Drift EA á Akureyri síðastliðinn fimmtudag þar sem frumkvöðlar, nemendur og áhugafólk um nýsköpun komu saman á léttum happy hour viðburði. Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við Drift EA, Háskólann á Akureyri og Hraðið Nýsköpunarmiðstöð á Húsavík. 

Kolfinna María Níelsdóttir, leiðtogi markaðsmála og viðburða hjá Drift bauð gesti velkomna og opnaði viðburðinn, en Stefán Pétur Sólveigarson, hönnuður og nýsköpunarstjóri hjá Hraðinu sagði því næst nokkur orð um frumkvöðlastarf og mikilvægi þess að skapa vettvang fyrir nýjar hugmyndir á Norðurlandi. Anna Schalk Sóleyjardóttir, verkefnastjóri Gulleggsins, kynnti keppnina, ferlið og þau tækifæri sem þátttaka í Gullegginu getur skapað fyrir fólk með hugmyndir að nýjum lausnum og fyrirtækjum.   

Sérstakur gestur var Páll Þór Ingvarsson, einn stofnenda Affineva sem er sigurvegari Gulleggsins 2026. Hann deildi reynslu sinni af því að taka þátt í keppninni, frá fyrstu hugmynd að lokakeppni, og gaf gestum innsýn í það hvernig Gulleggið getur hjálpað hugmyndum að taka næstu skref. 

Fulltrúar bakhjarla Gulleggsins, Landsbankinn, KPMG og JA Iceland, voru einnig á staðnum og kynntu starfsemi sína og stuðning við frumkvöðla fyrir gestum. Viðburðurinn gaf því jafnframt gott tækifæri til að kynnast þeim fjölmörgu aðilum sem standa að baki Gullegginu og því stuðningsneti sem keppnin byggir á. 

Vel var mætt og góð stemning myndaðist þegar gestir skáluðu, spjölluðu og ræddu nýjar hugmyndir, frumkvöðlastarf og tækifæri til að taka þátt í Gullegginu 2027.

KLAK þakkar Drift EA, samstarfsaðilum og bakhjörlum Gulleggsins innilega fyrir skemmtilega stund! 

Gulleggið er opið öllum sem vilja koma hugmyndum sínum áfram – hvort sem hugmyndin er enn á byrjunarreit eða þegar farin að taka á sig mynd. Skráning er hafin á Gulleggid.is

We use cookies 🍪

We use cookies to improve your experience, analyze site usage, and support the continued development of our services. By clicking "Accept All", you consent to their use.