Lokadagur KLAK health 2026 fór fram í hádeginu miðvikudaginn 25. nóvember á Nauthóli, þar sem níu heilsutækniteymi kynntu lausnir sínar fyrir fjárfestum, lykilaðilum úr heilbrigðis- og nýsköpunargeiranum og öðrum gestum. Viðburðurinn markaði lok fimm vikna viðskiptahraðals á sviði heilsutækni sem KLAK – Icelandic Startups stóð fyrir í annað sinn.
Saga Garðarsdóttir stýrði viðburðinum og þau Sigurður Þórarinsson, forstöðumaður Stafrænnar heilsu, og Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK, fluttu stutt erindi áður en teymin stigu á svið.
Hvert teymi fékk fjórar mínútur til að kynna lausn sína og svaraði í kjölfarið spurningum frá fjárfestunum Sigríði Harðardóttur, fjárfestingastjóra hjá Iðunni, sjóði Kviku eignastýringar, og Andra Heiðari Kristinssyni, meðeiganda hjá Frumtak Ventures.
Fjölbreyttar lausnir á sviði heilsutækni
Verkefnin sem tóku þátt í KLAK health í ár endurspegla fjölbreytileika nýsköpunar á sviði heilbrigðismála. Lausnir teymanna miða meðal annars að því að greina sjúkdóma fyrr, draga úr sýkingum, bæta líðan og gera fólki auðveldara að nýta sér heilbrigðisþjónustu. Verkefnin eru jafnframt mislangt á veg komin, allt frá hugmyndum á frumstigi til lausna sem eru komnar vel á veg í þróun.
Teymin níu sem tóku þátt í hraðlinum í ár voru (í stafrófsröð):
- Affineva þróar tækni sem finnur örsmáar agnir í blóðsýnum sem geta gefið vísbendingar um krabbamein og aðra sjúkdóma, svo hægt sé að greina þá fyrr.
- Birta hjálpar fólki að undirbúa sig fyrir tíma hjá heimilislækni, svo meiri tími fari í samtalið sjálft.
- Eitrunarvísir hjálpar starfsfólki eitrunarmiðstöðva að meta fljótt og örugglega hversu alvarlegt eitrunartilfelli er.
- Flugstjóraaðferðin hjálpar foreldrum og skólum að fylgjast saman með líðan barna með ADHD, einhverfu eða kvíða og gefur læknum skýrari mynd af því hvernig barninu líður.
- Heimaspítali Suðurlands gerir fólki kleift að fá sjúkrahúsþjónustu heima hjá sér í stað þess að leggjast inn og stefnir að því að bjóða hana um allt Suðurland.
- Logn er lítið tæki sem spilar róandi hljóð og hjálpar fólki með eyrnasuð að ná ró í daglegu lífi.
- Minamo þróar húðun fyrir lækningatæki úr sílikoni sem kemur í veg fyrir að bakteríur festist við þau og dregur þannig úr sýkingum án sýklalyfja.
- Mín Skimun er app sem minnir konur á hvenær þær eiga að fara í brjósta- og leghálsskimun og hjálpar þeim að skoða brjóstin sjálfar.
- WaveResilience mælir streitu starfsfólks út frá hjartslætti og kennir því leiðir til að takast betur á við álag.
Fimm vikur af markvissri þróun
Undanfarnar fimm vikur hafa teymin unnið markvisst að þróun verkefna sinna með stuðningi reyndra leiðbeinenda og sérfræðinga úr atvinnulífinu. Í hraðlinum fengu teymin fræðslu og þjálfun sem sniðin var að þörfum heilsutæknifyrirtækja, meðal annars á sviði viðskiptaþróunar, regluverks, hugverkaréttinda, markaðs- og sölumála og fjármögnunar.
Áhersla var lögð á að teymin öðluðust betri skilning á þeim áskorunum og tækifærum sem fylgja þróun heilsutæknilausna og stæðu að hraðlinum loknum með skýra þróunaráætlun og raunhæf næstu skref í átt að samstarfi við lykilaðila eða öflun borgandi viðskiptavina.
„Það er ótrúlegt hvað getur gerst á fimm vikum. Sum teymi endurskoðuðu viðskiptalíkanið sitt og önnur fundu nýja leið til að koma lausninni í notkun. Það skemmtilega við lokadaginn í ár var að sjá öll níu teymin sýna lausnirnar sínar í beinni. Þá fengu gestir að sjá með eigin augum hvað teymin höfðu byggt upp og hvernig lausnirnar gætu nýst í heilbrigðisþjónustu,,“ segir Ásta Sóllilja framkvæmdastjóri KLAK.
KLAK þakkar bakhjörlum KLAK health, Landspítala, heilbrigðisráðuneytinu, Íslandsbanka, Helix, Securitas, Heilsuvernd, Lifa VC, Össuri, Nox Medical, Frumtökum og Lyfju, kærlega fyrir stuðninginn og óskar teymunum til hamingju með hraðalinn.






















