Frábær vika á TechBBQ að baki

Um fjörutíu íslensk fyrirtæki, sjóðir og stofnanir sóttu TechBBQ í Kaupmannahöfn 26.–27. ágúst, eina stærstu sprotaráðstefnu Norðurlanda. KLAK – Icelandic Startups hélt þar viðburðinn Supernovas of Tomorrow, þar sem sex af tíu teymum Startup SuperNova kynntu lausnir sínar fyrir alþjóðlegum gestum.

TechBBQ var haldin í Bella Center í Kaupmannahöfn dagana 26. og 27. ágúst og dró til sín yfir tíu þúsund gesti, meira en 1.500 fjárfesta, um 3.000 sprotafyrirtæki og yfir 340 fyrirlesara. Ráðstefnan er orðin einn helsti samkomustaður norræna nýsköpunarvistkerfisins – og í ár var íslenska viðveran óvenju sterk.

Íslandsstofa leiddi sendinefndina, sem samanstóð af um fjörutíu íslenskum fyrirtækjum, fjárfestingarsjóðum og stofnunum. Á meðal þeirra voru Crowberry Capital, Frumtak Ventures, Kría, Kerecis, Kara Connect, DTE, Taktikal, Hefring, Humble, Kveikja, PLAIO, Swapp Agency og KLAK – Icelandic Startups. Íslenski básinn C2-019 varð heimahöfn hópsins báða dagana og daginn fyrir ráðstefnuna bauð sendiherra Íslands í Danmörku sendinefndinni til tengslamóts á sendiherrabústaðnum.

Supernovas of Tomorrow

Hápunktur KLAK á ráðstefnunni var viðburðurinn Supernovas of Tomorrow, sem fram fór á Green Grill Session-sviðinu í Hall E á fyrri degi ráðstefnunnar. Þar fengu teymi úr Startup SuperNova, vettvang til að kynna lausnir sínar fyrir fjárfestum, samstarfsaðilum og gestum frá öllum Norðurlöndunum.

Sex af tíu teymum yfirstandandi hraðals stigu á svið:

  • Appfold – ersónulegur hugbúnaðarvettvangur sem býr til, hýsir og deilir smáforritum með gervigreind, án forritunarkunnáttu.
  • Comenius – gervigreindardrifið stjórnkerfi fyrir skóla
  • FreightFlow – stafrænn vettvangur fyrir vöruflutninga og flutningsmiðlun
  • MAGNEA – gervigreind til verðspár fyrir útflytjendur sjávarfangs
  • Ogma – lausn sem styður málþroska barna með gervigreind
  • Sinope – gervigreind sem einfaldar reglufylgni og vottunarferli fyrir sprotafyrirtæki

Fyrir teymi sem eru þrjár vikur inn í hraðal er reynslan af því að kynna á alþjóðlegu sviði ómetanleg. Þau fá ekki aðeins æfingu í að þjappa sögunni sinni saman í nokkrar mínútur fyrir áheyrendur sem þekkja ekki íslenskan markað – þau fá líka fyrstu raunverulegu viðbrögðin frá fjárfestum og samstarfsaðilum utan landsteinanna.

„Að fá að taka Startup SuperNova teymin með á TechBBQ á meðan á hraðlinum stendur var frábær reynsla. Þar fengu þau að stíga út fyrir íslenska markaðinn, kynna hugmyndir sínar fyrir alþjóðlegum aðilum og fá fyrstu samtölin með fjárfestum og mögulegum samstarfsaðilum. Þetta er nákvæmlega það sem við leggjum upp með fyrir teymin í Startup SuperNova – að gefa þeim vettvang til að hugsa stærra, bæði á Íslandi og út fyrir landsteinana.“ segir Magnús Daði Eyjólfsson, verkefnastjóri Startup SuperNova

Alumni tóku þátt

Viðburðurinn var ekki eingöngu fyrir teymin í Startup SuperNova 2026. PLAIO and Swapp Agency, tvö fyrirtæki úr alumni-neti KLAK sem bæði voru hluti af íslensku sendinefndinni, fluttu fimm mínútna erindi. Þau sýndu í reynd hvað gerist þegar hugmynd sem hefur farið í gegnum hraðal fær tíma til að vaxa, og gáfu teymunum í salnum áþreifanlega mynd af næstu skrefum.

Þessi samsetning, teymi á fyrstu stigum við hlið fyrirtækja sem eru nokkrum árum á undan, er kjarninn í því hvernig KLAK vinnur. Tengslanetið er ekki eitthvað sem teymi fá afhent við lok hraðals, heldur samfélag sem þau ganga inn í.

Íslendingar á sviðum ráðstefnunnar

Íslensk viðvera var víðar en á KLAK-viðburðinum. Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch hjá Fönn og Dóra Hlín Gísladóttir hjá Kerecis fluttu bæði erindi á Life Science x Deep Tech-sviðinu, þar sem Kerecis rakti vaxtarsögu sína frá íslensku fiskiroði til alþjóðlegs vefjalækningamarkaðar. Andri Geir Arnarson hjá Humble tók þátt í panel á Nordic–India Startup Summit, Kveikja stýrði grill session um gervigreind og jafnrétti, og á öðrum degi sat Jón Ingi Benediktsson frá menningar-, nýsköpunar- og háskólamálaráðuneytinu í panel um norrænt fjármagnsumhverfi. Tobba Vigfúsdóttir hjá Kara Connect fjallaði um það að vaxa á ströngu regluverki evrópska markaðarins.

Norræn kortlagning kynnt

Á ráðstefnunni var einnig kynnt ný skýrsla, State of the Nordic Innovation Ecosystem, sem KLAK vann að í samstarfi við SISP, Smart Innovation Norway, TechBBQ, Startup Estonia og Maria 01, að frumkvæði Nordic Innovation. Skýrslan byggir á kortlagningu 898 stofnana, 74 viðtölum og greiningu á meira en 21.000 sprotafyrirtækjum.

Niðurstaðan er skýr: Norðurlöndin eru meðal fremstu nýsköpunarsvæða heims, en sprotafyrirtæki flytja sig oft úr landi þegar kemur að vaxtarstiginu. Vandinn er ekki skortur á hugmyndum eða hæfileikafólki – heldur sundrung. Fyrirtæki á einu öflugasta nýsköpunarsvæði heims standa enn frammi fyrir sex aðskildum mörkuðum.

Framhaldið

Fyrir KLAK var TechBBQ bæði “stóra sviðið” og vinnuvika: fundir með fjárfestum, samtöl um samstarf við aðra norræna stuðningsaðila og ráðstefnur, og fjöldi nýrra tengsla fyrir teymin í Startup SuperNova.

Startup SuperNova heldur nú áfram af fullum krafti heima í Grósku, þar sem fjármögnun og fjárfestasamtöl eru í forgrunni næstu vikurnar áður en teymin kynna lausnir sínar á uppskeruhátíð hraðalsins. Nánari upplýsingar um hraðalinn og starf KLAK er að finna á vefnum okkar.

en_GBEnglish (UK)

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.