Startup SuperNova 2026 has begun: Power and innovation in Gróska

Sex vikna viðskiptahraðallinn Startup SuperNova var ræstir í Grósku þriðjudaginn 4. ágúst. Metfjöldi umsókna barst í ár og voru tíu framúrskarandi teymi valin til þátttöku: Cirtuic, Comenius, ELORA, FreightFlow, Hrím Bioworks, MAGNEA, Ogma, Saman, Sinope og Strux.

Hraðallinn hófst með léttum samhristingi teymanna, en strax á miðvikudagsmorgun var vinnan hafin af fullum krafti. Fram undan er þétt dagskrá þar sem boðið er upp á vinnustofur, handleiðslu sérfræðinga og mentorafundi. Einnig verður farið í ferð á TechBBQ-ráðstefnuna í Kaupmannahöfn. Hraðlinum verður svo loks slitið með sérstökum fjárfestadegi þann 18. september þar sem afrakstur sumarsins verður kynntur fyrir fjárfestum.

Mikill kraftur og fjölbreytileiki er einkennandi fyrir hraðalinn í ár, en á meðal þeirra tíu sprotafyrirtækja sem taka þátt má finna lausnir á sviði gervigreindar, líftækni og tölvuleikja. Að sögn Magnúsar Daða Eyjólfssonar, verkefnastjóra Startup SuperNova, gætir mikils metnaðar í teymunum og er hlakkað mikið til samstarfsins næstu sex vikurnar.

Fylgst er með ferðalaginu á Instagram-síðu Startup SuperNova.

Startup SuperNova er sex vikna viðskiptahraðall sem rekinn er af KLAK – Icelandic Startups í samstarfi við Nova og Huawei með stuðningi frá Grósku, og er þetta í sjöunda sinn sem verkefnið fer fram.

Startup SuperNova is a six-week business accelerator run by KLAK – Icelandic Startups in collaboration with Nova and Huawei with support from Gróska.

We use cookies 🍪

We use cookies to improve your experience, analyze site usage, and support the continued development of our services. By clicking "Accept All", you consent to their use.