Hringiða+ er viðskiptahraðall fyrir grænar lausnir á vegum KLAK – Icelandic Startups. Hlutverk Hringiðu+ er að stuðla að því að á Íslandi dafni öflug fyrirtæki sem byggja á hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins, sjálfbærni og umhverfis- og/eða loftslagsmála og skili árangri og spennandi störfum í þessum málaflokkum. Markmið hraðalsins er jafnframt að þátttakendur verði í lokin í stakk búin að sækja um græna styrki bæði hérlendis og erlendis.
Í samstarfi við Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Samtök iðnaðarins, Orkuveituna, Terra, Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir veitir hraðallinn þátttakendum sérfræðiráðgjöf, tengslamyndun og aðgang að fjárfestum og viðskiptatækifærum sem hraða vexti þeirra og þróun lausna sem geta haft raunveruleg áhrif á samfélagið.
Að þessu sinni voru eftirfarandi teymi valin:
Ocean Power
Haf-Afl vinnur að nýtingu ölduorku við Íslandsstrendur til að skapa stöðuga og sjálfbæra orkulind fyrir framtíðina. Með fyrsta ölduorkugarðinum við Vestmannaeyjar stefnir teymið að því að bæta orkuöryggi og styðja við græn orkuskipti á Íslandi. Þetta er nýr áfangi í þróun sjávarorkunýtingar hérlendis.
HuddleHop
HuddleHop er snjöll lausn fyrir samnýtingu bílferða á Íslandi sem dregur úr ferðakostnaði og kolefnisspori. Með því að tengja farþega og ökumenn í gegnum notendavænt vef- og snjallforrit skapar HuddleHop hagkvæmari og umhverfisvænni samgöngumáta fyrir alla.
Loki Foods
Loki Foods leggur áherslu á hrein hráefni, endurnýjanlega orku og næringu til að þróa bragðgóð plöntumiðuð matvæli. Með sjálfbærni að leiðarljósi býður Loki Foods upp á nýja valkosti fyrir neytendur og stuðlar að þróun framtíðarinnar í matvælaframleiðslu.
Optitog ehf.
Optitog þróar og leigir út sérhæfð veiðarfæri sem auka aflameðhöndlun í togurum og gera veiðar skilvirkari. Með hátæknilausnum sem standast kröfur fyrir harðneskjulegt umhverfi sjávarútvegsins hjálpar Optitog við að hámarka aflann, draga úr umhverfisáhrifum og bæta rekstrarhagkvæmni útgerða um allan heim.
The Fungi Kingdom
The Mushroom Kingdom is an innovative company that transforms organic waste into high-quality gourmet mushrooms. With a smartly managed cultivation system that maximizes resource utilization and minimizes waste, The Mushroom Kingdom utilizes by-products of the food industry to create sustainable and consistent gourmet mushroom production. This circular system ensures that nothing goes to waste and delivers nutritious products to the market.
Timber Recycling ehf
TRE endurvinnur timburúrgang og umbreytir honum í hágæða timbureiningar fyrir byggingariðnaðinn. Með því að nýta timbureiningar unnar úr úrgangstimbri í stað nýrra viðarefna stuðlar TRE að minni sóun, lægra kolefnisspori og sjálfbærari byggingarlausnum.
Seaweed
Þarahrat is working on developing sustainable building materials from organic industrial waste from microalgae production. By using these resources instead of polluting materials, the project closes the loop of local industry and creates value from waste. These new materials are environmentally friendly, low-carbon and have a variety of applications in the construction industry.
Hringiða+ mun standa yfir í 8 vikur og munu teymin fá handleiðslu frá sérfræðingum í atvinnulífinu, tækifæri til að vinna með bakhjörlum verkefnisins og aðgang að fjölbreyttum fjármögnunartækifærum svo eitthvað sé nefnt.
Við óskum öllum þátttakendum til hamingju og hlökkum til að fylgjast með vegferð þeirra!