Lyfja og KLAK sameina krafta sína í þágu nýsköpunar í heilsutækni

Lyfja hefur gengið til liðs við öflugan hóp bakhjarla KLAK health, viðskiptahraðals KLAK – Icelandic Startups fyrir sprotafyrirtæki á sviði heilsutækni. Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK, og Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju, undirrituðu samstarfssamning þess efnis á dögunum.

KLAK health er fimm vikna viðskiptahraðall fyrir sprotateymi sem þróa lausnir á sviði lækningatækja, líftækni, lyfjaþróunar, stafrænnar heilsutækni og heilsulausna fyrir neytendur. Markmið hraðalsins er að styðja við uppbyggingu og vöxt íslenskra heilsutæknifyrirtækja með sérhæfðri fræðslu, einstaklingsmiðaðri leiðsögn og tengingum við fjárfesta, sérfræðinga og lykilaðila í heilbrigðis- og nýsköpunarumhverfinu.

Lyfja rekur 44 apótek og útibú um land allt og veitir fjölbreytta heilbrigðisþjónustu, meðal annars hjúkrunarþjónustu, heilsufarsmælingar, heyrnarþjónustu,  lyfjaskömmtun og stafræna þjónustu í gegnum Lyfju appið. Með aðkomu Lyfju fá þátttakendur KLAK health aðgang að mikilvægri þekkingu á þörfum notenda, þróun heilbrigðisþjónustu og því hvernig nýjar lausnir geta skapað raunverulegt virði fyrir almenning.

„Það er okkur mikið ánægjuefni að fá Lyfju inn í bakhjarlahóp KLAK health. Lyfja býr yfir víðtækri þekkingu á heilbrigðisþjónustu og er í daglegum tengslum við fólk um allt land. Sú reynsla og innsýn getur verið afar verðmæt fyrir frumkvöðla sem vilja þróa lausnir sem mæta raunverulegum þörfum og bæta heilsu og lífsgæði fólks,“ segir Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups.

„Við hjá Lyfju trúum því að öflug nýsköpun og samstarf séu lykillinn að heilbrigðisþjónustu framtíðarinnar. Með þátttöku í KLAK health viljum við styðja frumkvöðla sem þróa lausnir sem bæta aðgengi að heilbrigðisþjónustu, efla forvarnir og skapa raunverulegt virði fyrir fólk. Við hlökkum til að deila okkar reynslu og læra um leið af þeim hugmyndum og lausnum sem verða til innan hraðalsins,“ segir Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju.

KLAK health leiðir saman frumkvöðla, fyrirtæki, fjárfesta, heilbrigðisstofnanir og opinbera aðila með það að markmiði að efla íslenskt nýsköpunarumhverfi og skapa öflugri jarðveg fyrir þróun og vöxt heilsutæknifyrirtækja.

Samstarfið við Lyfju styrkir enn frekar þann öfluga hóp bakhjarla sem stendur að KLAK health og deilir þeirri sýn að Ísland geti orðið leiðandi á sviði heilsutækni.

Nánar má lesa um hraðalinn á vef KLAK health.

Bakhjarlar hraðalsins eru Landspítali, Heilbrigðisráðuneytið, Íslandsbanki, Helix, Lifa VC, Veritas, Össur, Nox Medical og nú Lyfja

en_GBEnglish (UK)

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.