Hugmyndahraðhlaup Gulleggsins & Landsbankans fór fram í Landsbankanum helgina 9.-10. janúar s.l. , þar sem háskólanemar alls staðar að af landinu komu saman og unnu lausnir viðvið raunverulegum áskorunum frá hópi bakhjarla Gulleggsins. Þátttakan var frábær og fjölbreytt, með teymum úr háskólum landsins sem mynduðu öflugt samfélag nýsköpunar, samvinnu og skapandi hugsunar.

IORDEN bar sigur úr býtum með lausn á áskorun JBT Marel
Teymið IORDEN stóð uppi sem sigurvegari Hugmyndahraðhlaupsins, en teymið tókst á við áskorun JBT Marel, sem snýr að því hvernig minni matvælaframleiðendur geti nýtt sér sjálfvirknivæðingu og snjallar tæknilausnir til að efla gæði og auka skilvirkni. Í IORDEN kynnti hugmynd að hugbúnaðarlausn sem samþættir gögn frá ólíkum vélum og skynjurum og innleiðir sjálfvirka skýrslugerð. Lausnin léttir verulega á handavinnu við gæðaeftirlit og vottanir, sem hefur verið stór þröskuldur fyrir smærri fyrirtæki.



„Hraðhlaupið sýnir kraftinn sem skapast þegar ólíkir hæfileikar koma saman og leysa áskoranir á stuttum tíma. Með faglegri handleiðslu og skýrum áskorunum ná teymi að móta lausnir sem geta haft raunveruleg áhrif,“ segir verkefnateymi Gulleggsins.
Verðlaun og næstu skref
Sigur IORDEN tryggði teyminu 150.000 kr. verðlaunafé og sæti í Topp 10 hópnum í Lokakeppni Gulleggsins 2026. Lokakeppnin fer fram í Grósku 26. febrúar og munu teymi kynna hugmyndir sínar fyrir dómnefnd og áheyrendum.
Áskoranir bakhjarla og öflugt stuðningsumhverfi
ELKO, Háskólinn í Reykjavík, KPMG, JBT Marel og Reykjavíkurborg lögðu fram áskoranir sem þátttakendur unnu að í gegnum helgina. Hugmyndahraðhlaupið er hluti af víðtækum stuðningi KLAK – Icelandic Startups við frumkvöðla, þar sem þekking, tengsl og leiðsögn sérfræðinga skapa vettvang fyrir framfarir og verðmætasköpun.

Gulleggið
Gulleggið, Iceland’s largest and oldest entrepreneurship competition for ventures at the idea stage, is organised annually by KLAK – Icelandic Startups. The competition is open to everyone and is especially intended for those interested in innovation and starting a business, whether or not their idea is fully developed. The winner receives ISK 2 million from Landsbankinn.
The Gulleggið Masterclass is a free course open to everyone, where participants receive support to develop their ideas, identify business opportunities and prepare a pitch that meets the requirements for the final round.