WaveResilience er íslenskt sprotafyrirtæki sem mælir lífeðlisleg viðbrögð við streitu með hjartsláttarbreytileika og þjálfar fólk í að byggja upp streituþol. Sérfræðingur kemur á vinnustaðinn og mælir ástand hóps. Eftir nokkurra vikna þjálfun með vinnustofum og æfingum í appi er ástand mælt aftur, svo vinnustaðurinn sér hvernig þjálfunin skilaði sér. Hver þátttakandi á sín eigin gögn; vinnustaðurinn sér nafnlausa hópmynd. Þjónustan er seld til vinnustaða sem mælingarpakki, með prógrammi og áskrift í framhaldi.





