Terra renews support for Hringiðu – continuing to support circular and environmental innovation

Terra og KLAK – Icelandic Startups hafa undirritað nýjan samstarfssamning þar sem Terra endurnýjar stuðning sinn við nýsköpunarhraðalinn Hringiðu. Með samningnum staðfestir Terra enn á ný trú sína á mikilvægi hringrásarhagkerfis og lausna sem draga úr sóun og hámarka nýtingu auðlinda.

Við hjá KLAK fögnum því að hafa Terra áfram með okkur í liði og sjáum þetta sem skýrt traust til þeirra frumkvöðla sem taka þátt í Hringiðu. Stuðningur Terra skiptir lykilmáli við að skapa öfluga umgjörð um sprotafyrirtæki sem vinna að nýjum lausnum á sviði umhverfis- og loftslagsmála.

Hringiða er sérhæfður hraðall fyrir verkefni og sprota sem vinna að grænum lausnum og sjálfbærum viðskiptalíkönum. Með samstarfi KLAK og Terra fá teymi í hraðlinum aðgang að sérfræðiþekkingu, tengslaneti og handleiðslu sem getur flýtt fyrir vexti þeirra og aukið líkur á árangri.

Nýr samningur við Terra styrkir enn frekar vistkerfi nýsköpunar á Íslandi og undirstrikar mikilvægi þess að atvinnulífið standi með frumkvöðlum sem vilja þróa lausnir sem nýtast bæði fyrirtækjum og samfélaginu í heild.

Hringiða is a six-week business accelerator tailored to the needs of startups with green solutions.

We use cookies 🍪

We use cookies to improve your experience, analyze site usage, and support the continued development of our services. By clicking "Accept All", you consent to their use.