Salurinn í Grósku iðaði af lífi þegar metnaðarfull teymi mótuðu framtíðarsýn sína, skerptu viðskiptamódel og dýpkuðu skilning á hagnýtingu gervigreindar.
Einstök stemning einkenndi tveggja daga Superclass fyrir Startup SuperNova 2026 sem fram fór í Grósku. Fjölmörg teymi komu saman til að leggja grunninn að næstu skrefum í sínum vexti og undirbúa sig fyrir komandi áskoranir á alþjóðlegum markaði. Markmiðið var að vopna frumkvöðla þeim verkfærum sem þarf til að breyta hugmynd í öflugt vaxtarfyrirtæki.
Áhersla var lögð á mótun skýrrar 18 mánaða aðgerðaáætlunar þar sem viðskiptamódel voru rýnd og skerpt í samvinnu við sérfræðinga. Einn hápunkta daganna var fræðsla um hvernig nýta má gögn og gervigreind til að taka upplýstari og markvissari ákvarðanir í rekstri sprotafyrirtækja, sem er lykilþáttur í samkeppnishæfni nútímans.
Dagarnir einkenndust af einbeittri vinnu og líflegum umræðum. Fjölmörg „aha“-móment litu dagsins ljós þegar hugmyndir teymanna tóku á sig skýrari mynd undir leiðsögn reyndra leiðbeinenda. Hjá KLAK – Icelandic Startups erum við gífurlega stolt af þeim krafti sem einkennir hópinn og hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi vegferð þeirra inn í sjálfan hraðalinn í haust.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Startup SuperNova hraðalinn sem hefst í haust. Sprotar með alþjóðlegan metnað eru hvattir til að nýta tækifærið og sækja um á vef verkefnisins. Startup SuperNova er samstarfsverkefni KLAK – Icelandic Startups, Nova og Huawei með dýrmætum stuðningi frá Grósku hugmyndahúsi.































