Teymin sem taka þátt í Hringiðu 2026 kynnt

Hringiða, sex vikna viðskiptahraðall KLAK fyrir sprotafyrirtæki með grænar lausnir, hefst formlega 7. apríl. Að þessu sinni voru sjö teymi valin til þátttöku úr hópi fjölmargra sterkra umsókna. Á næstu vikum munu teymin þróa lausnir sínar áfram og undirbúa þær fyrir markað með aðstoð frá KLAK, reyndum mentorum og sérfræðingum úr atvinnulífinu.

Markmið Hringiðu er að styðja við uppbyggingu öflugra fyrirtækja sem byggja á grænum lausnum og sjálfbærni. Hraðallinn er mikilvægur vettvangur fyrir frumkvöðla sem vinna að nýsköpun sem styður við hringrásarhagkerfið, dregur úr sóun, bætir nýtingu auðlinda og stuðlar að sjálfbærri framtíð. Þátttakendur fá aðgang að breiðu tengslaneti leiðbeinenda úr atvinnulífinu og markvissa þjálfun í uppbyggingu sprotafyrirtækja.

Bakhjarlar Hringiðu eru Terra, Faxaflóahafnir, Reykjavíkurborg, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Samtök iðnaðarins.

Á meðan á hraðlinum stendur taka teymin þátt í metnaðarfullri dagskrá sem styður þau í að móta viðskiptamódel sín, þróunaráætlun og næstu skref. Hraðlinum lýkur með fjárfestadegi 20. maí þar sem verkefnin verða kynnt fyrir fjárfestum og öðrum lykilaðilum í grænu og sjálfbæru viðskiptalífi.

Teymin í Hringiðu 2026 eru:

Araxni

Vefur nýja framtíð úr líftækniframleiddu köngulóarsilki í stað plasts fyrir sjávarútveg, textíliðnað og fleiri geira. Lausnin einfaldar framleiðsluferlið, lækkar kostnað og dregur verulega úr umhverfisáhrifum.

E-LÍSA

Hugbúnaðarlausn sem dregur úr áhættu í jarðvarmaþróun og tryggir að borholur skili áreiðanlegum og fyrirsjáanlegum afköstum. Kerfið hámarkar orkuvinnslu úr hverri holu með því að auka gegndræpi berglaga á markvissan hátt.

IORDEN

Hagkvæmur og sjálfvirkur gæðastjóri sem gerir smærri matvælaframleiðendum kleift að halda utan um sína framleiðslu á einum stað. Kerfið samþættir vélbúnað og hugbúnað með vélmálstækni til að fækka villum og auka gagnsæi.

Loopable

Lokar hringnum með því að tæta ónýtan textíl og breyta honum í hágæða prjónagarn og fyllingarefni fyrir húsbúnað. Verkefnið tekst á við vaxandi vanda vegna textílsóunar og skapar ný verðmæti úr efnum sem annars færu til spillis.

Ratatag

Tengir saman eigendur og finnendur týndra muna með einföldu QR-kóðakerfi til að lengja líftíma fatnaðar og búnaðar. Þessi lausn stuðlar að betri nýtingu á eigum fólks og dregur úr þörf á nýinnkaupum með því að auðvelda endurheimt.

Soil Lagoon

Áformar byggingu fyrstu jarðvegshreinsistöðvar Íslands sem nýtir jarðhitavatn til að hreinsa mengaðan jarðveg. Þessir innviðir gera kleift að vinna bug á umhverfisvanda innanlands í stað þess að flytja jarðveg úr landi til förgunar.

Thermal Beets Records

Framleiðir sjálfbærar vínylplötur úr sykurrófum í stað hefðbundins PVC-plasts með íslenskri grænni orku. Markmiðið er að gera tónlistarútgáfu umhverfisvænni og byggja upp nútímalega plötupressun hér á landi.

Mikil eftirvænting ríkir fyrir komandi vikum og verður spennandi að fylgjast með framvindu þessara framsæknu verkefna sem öll eiga það sameiginlegt að vilja stuðla að grænni framtíð á Íslandi.

en_GBEnglish (UK)

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.