Hugmyndahraðhlaup í heilsutækni: HILDA sigraði í sterku samkeppnisumhverfi

Hugmyndahraðhlaup í heilsutækni fór fram í annað sinn dagana 13.–14. mars 2026 í Grósku, þar sem frumkvöðlar, nemar og fagfólk úr ólíkum greinum komu saman til að takast á við raunverulegar áskoranir úr íslenska heilbrigðiskerfinu. Mæting var mjög góð og ríkti kraftmikil og jákvæð stemning alla helgina þar sem unnið var markvisst að því að móta lausnir sem geta bætt þjónustu, aðgengi og upplifun fólks í heilbrigðisþjónustu.

Í tveggja daga hraðhlaupinu unnu þátttakendur í þverfaglegum teymum að áskorunum frá bakhjörlunum Landspítala, Heilbrigðisráðuneytinu, Stafrænu Íslandi og í opnum flokki:

  • Landspítali: Hvernig má einfalda fyrir eldra fólk, aðstandendur og fagfólk að finna, sækja um og samræma þá þjónustu sem þarf þegar þjónustuþörf eykst?
  • Heilbrigðisráðuneytið: Hvernig getum við nýtt gögn, tækni og nýjar nálganir til að bæta tímabókanir með áherslu á mat og forgangsröðun þjónustu fyrir almenning?
  • Stafrænt Ísland: Notendalausn til að styðja við einstaklinga í skilgreindri meðferð þannig að þeir geti verið virkir þátttakendur í sinni meðferð og eigi auðvelt með að leita sér viðeigandi aðstoðar.
  • Opinn flokkur: Skapandi og framsæknar heilsutæknilausnir sem bæta aðgengi, skilvirkni og gæði heilbrigðisþjónustu fyrir öll.

Fjölbreyttar lausnir spruttu upp í hugmyndahraðhlaupinu og komu fram margar metnaðarfullar tillögur að nýjum heilsutækniverkefnum. Að lokum voru sett saman fimm öflug teymi sem kynntu hugmyndir sínar fyrir dómnefnd, þar sem lögð var áhersla á notendamiðaða nálgun, framkvæmdahæfni og möguleg samfélagsleg áhrif.

Það var hugmyndin HILDA sem bar sigur úr býtum í ár. HILDA er stafræn lausn sem hjálpar foreldrum að undirbúa sig fyrir viðtal hjá lækni með því að kortleggja vanda barnsins og svara lykilspurningum fyrirfram – þannig nýtist læknisheimsóknin sem best, stuðlar að markvissari samskiptum og betri eftirfylgni. Dómnefnd taldi HILDU sýna skýrt hvernig einföld, vel útfærð lausn getur haft raunveruleg áhrif á upplifun fjölskyldna af heilbrigðisþjónustu.

Önnur teymi kynntu einnig áhugaverðar lausnir sem m.a. beindu sjónum að því að:

– auðvelda fólki að finna rétta heilbrigðis- og félagsþjónustu heima fyrir,
– styðja við forvirka heilsuvernd eldra fólks með nýjum nálgunum og gervigreind,
– bæta samskipti og samhæfingu milli fagfólks sem veitir þjónustu í heimahúsum,
– og nýta stafrænar lausnir til að gera ferla skilvirkari og gagnsærri fyrir notendur og starfsfólk.

Þátttakendur fengu handleiðslu frá sérfræðingum í nýsköpun og heilsutækni alla helgina, unnu að því að skerpa á verðmætasköpun hugmynda sinna og kynntu niðurstöðurnar að lokum fyrir dómnefnd og gestum. Hugmyndahraðhlaupið skapaði jafnframt sterkan vettvang fyrir tengslamyndun milli frumkvöðla, fagfólks og lykilaðila í vistkerfi heilbrigðistengdrar nýsköpunar.

Hugmyndahraðhlaup í heilsutækni er hluti af KLAK Health og styður við markmið KLAK um að efla nýsköpun á sviði heilsutækni á Íslandi, hraða innleiðingu lausna inn í heilbrigðiskerfið og auka samstarf milli sprota, stofnana og stjórnvalda. Verkefnin sem mótast í hraðhlaupinu munu fá áframhaldandi stuðning við næstu skref í þróun, með það að leiðarljósi að góðar hugmyndir nýtist í þágu betri og aðgengilegri heilbrigðisþjónustu fyrir alla.

en_GBEnglish (UK)

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.