Corporate Venturing: Brúum bilið milli tækni og viðskipta í Grósku

Stærstu fyrirtæki landsins og sérfræðingar frá Miele og Liebherr komu saman til að hanna nýjar leiðir til samstarfs við sprotafyrirtæki og efla íslenskt nýsköpunarvistkerfi.

Á dögunum héldum við hjá KLAK – Icelandic Startups Grósku kraftmikla vinnustofu þegar fulltrúar stærstu fyrirtækja landsins, frumkvöðlar og sérfræðingar komu saman til að ræða eitt mikilvægasta viðfangsefni íslensks atvinnulífs í dag – Corporate Venturing. Markmið vinnustofunnar var að sýna fram á hvernig samvinna rótgróinna stórfyrirtækja og lipurra sprotafyrirtækja getur skapað raunverulegt gildi og drifið nýsköpun áfram.

Í samstarfi við Reykjavík Innovation Studio fengum við til okkar góða gesti, þá Sven Schneider, sem leiðir framtíðarþróun hjá Miele, og Danilo Randazzo frá Liebherr Appliances. Þeir deildu dýrmætri reynslu sinni af því hvernig alþjóðleg stórfyrirtæki og sprotar ná árangri saman, hvort sem markmiðið er að leysa áskoranir dagsins í dag eða móta lausnir framtíðarinnar.

Lykilatriði dagsins var skýrt: tæknin breytist í veldisvexti á meðan fyrirtæki þróast jafnan á línulegan hátt. Til að brúa þetta bil duga innri verkefni sjaldnast ein og sér. Leiðin að árangri felst í því að tengjast vistkerfinu utan veggja fyrirtækisins – með því að fjárfesta í sprotum, gerast viðskiptavinir þeirra eða byggja upp sjálfstæðar nýsköpunareiningar samhliða kjarnastarfseminni.

Þátttakendur vinnustofunnar fóru ekki tómhentir heim. Þeir kortlögðu eigin stöðu, hönnuðu ný ferli og byggðu raunhæfa 90 daga aðgerðaáætlun á grunni Corporate Venturing Map. Þetta er nákvæmlega sú vinna sem þarf til að íslensk stórfyrirtæki verði öflugri og virkari þátttakendur í okkar vaxandi nýsköpunarvistkerfi.

Við hjá KLAK – Icelandic Startups þökkum kærlega fyrir kraftmikinn dag, hreinskilnar samræður og raunverulegan vilja til breytinga. Þetta er aðeins byrjunin á spennandi vegferð í átt að auknum tengslum og meiri nýsköpun í íslensku atvinnulífi.

en_GBEnglish (UK)

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.