KLAK – Icelandic Startups hefur opnað fyrir umsóknir í KLAK health, fimm vikna viðskiptahraðal sem hefst 21. október. Opnað var fyrir umsóknir í kjölfar kynningarviðburðar sem fór fram í Grósku, þar sem hraðallinn og tækifærin sem hann býður upp á voru kynnt.
Á viðburðinum fluttu þær María Bragadóttir, nýsköpunarstjóri Stafrænnar Heilsu og Þórdís Rögn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri og einn stofnenda Rekovy erindi. Haraldur Bergvinsson, verkefnastjóri hjá KLAK – Icelandic Startups, kynnti verkefnið og opnaði fyrir umsóknir í kjölfarið.



Hraðallinn er ætlaður sprotum og frumkvöðlum sem vinna að nýsköpun í hvers kyns heilsutækni. Sem dæmi má nefna lausnir á borð við lækningatækni, líftækni og lyfjaþróun, stafrænar heilsulausnir eða neytendalausnir á borð við forvarnir, vellíðan og geðheilbrigði.





Markmið hraðalsins er að styðja við sprota í heilsutækni og styrkja tengslanet þeirra við nýsköpunarumhverfið. Áhersla er lögð á að auka skilning þátttakenda á því regluverki sem sprotar í heilsutækni starfa eftir og að teymin móti þróunaráætlun um næstu skref eftir að hraðli lýkur til að ná í greiðandi viðskiptavini eða samstarfsaðila.
Þá fá teymin framkomuþjálfun og að hraðlinum loknum gefst þeim tækifæri til að kynna verkefni sín fyrir fjárfestum og lykilaðilum úr íslensku atvinnulífi. Allt að tíu teymum verður boðið að taka þátt í hraðlinum og fá þau aðgang að skrifstofuaðstöðu í Grósku á meðan á hraðlinum stendur. Þátttaka er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Bakhjarlar KLAK health eru Landspítali, Heilbrigðisráðuneytið, Íslandsbanki, Helix, Securitas, Heilsuvernd, Lifa VC, Össur, Nox Medical, Frumtök og Lyfja.

Umsóknarfrestur er til og með 4. október. Hægt er að sækja um í KLAK health á www.klak.is/health