Virði lausna í forgrunni á vinnustofu með Lars Vestergaard

KLAK hélt í dag, 6. október, vinnustofuna Value Proposition Based Enterprise Selling Workshop fyrir frumkvöðla sem hafa tekið þátt í verkefnum KLAK. Lars Vestergaard, sem kom frá Kaupmannahöfn, leiddi vinnustofuna þar sem áherslan var á að miðla virði lausna með skýrum og sannfærandi hætti.

Frumkvöðlar þekkja eigin lausnir vel, en hvernig sýna þeir öðrum hvers vegna þær skipta máli? Sú spurning var í forgrunni vinnustofunnar. Hvort sem samtalið er við mögulegan viðskiptavin, samstarfsaðila eða fjárfesti þarf að vera skýrt hvaða þörf lausnin mætir og hvaða ávinning hún skapar.

Á vinnustofunni fengu þátttakendur tækifæri til að greina virðið í kjarnastarfsemi fyrirtækja sinna og skerpa á framsetningu þess. Þeir unnu að því að laga skilaboðin að ólíkum viðmælendum, æfa kynningar fyrir öðrum frumkvöðlum og nýta beina endurgjöf til að styrkja bæði innihald og framkomu.

Lars hefur unnið með þúsundum sprotafyrirtækja að því að skilgreina og miðla virði lausna þeirra. Í tveggja klukkustunda vinnustofunni nýtti hann þá reynslu til að hvetja þátttakendur til að gera skilaboð sín hnitmiðaðri og flytja þau af öryggi.

Vinnustofan byggði einkum á reynslu af sölu milli fyrirtækja og til stærri fyrirtækja, en viðfangsefnin nýttust einnig frumkvöðlum sem selja beint til neytenda. Markmiðið var að styðja þá í að tengja lausnir sínar við þarfir viðmælandans og taka næsta skref í viðskiptasamtalinu.

en_GBEnglish (UK)

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.