CALM

Eyrnasuð hefur áhrif á stóran hóp fólks. Talið er að um einn af hverjum sjö fullorðnum einstaklingum finni fyrir eyrnasuði og hjá tæpum helmingi þessa hóps séu einkennin truflandi. Eyrnasuð getur haft mikil áhrif á svefn, einbeitingu og lífsgæði og fyrir marga er erfiðast að einkenni þeirra hverfa ekki með öllu. Þær lausnir sem bjóðast í dag eru oft óþjálar í notkun, kalla á flókna tækni eða eru áberandi. Logn er ný íslensk lausn sem á að hjálpa fólki að venjast eyrnasuðinu svo það hafi sem minnst áhrif á daglegt líf. Áhersla er lögð á að lausnin sé þægileg og einföld í notkun og nýtist öllum. Hún byggir á viðurkenndri nálgun við meðferð eyrnasuðs. Stofnandinn hefur þurft að læra að lifa með eyrnasuði og hugmyndin kviknaði út frá eigin reynslu. Lausnin er þróuð í samstarfi við þverfaglegt teymi sérfræðinga.

LOGN – KLAK Health 2026

Related shoots

We use cookies 🍪

We use cookies to improve your experience, analyze site usage, and support the continued development of our services. By clicking "Accept All", you consent to their use.