LOGN

Fyrir flesta er þögnin hvíld. Fyrir fólk með eyrnasuð getur hún verið mikil áskorun. Af hverjum hundrað fullorðnum eru um sex með truflandi eyrnasuð sem getur haft áhrif á svefn, einbeitingu og lífsgæði. Á Íslandi samsvara það 18 þúsund einstaklingum og 22 milljónum í löndum ESB.

Margar lausnir sem nú bjóðast krefjast aðkomu sérfræðinga, kosta mikið eða eru óþjálar í daglegri notkun. Logn er ný íslensk lausn. Lítið og fallega hannað tæki sem spilar róandi hljóð í bakgrunni á meðan notandinn heyrir áfram í umhverfi sínu. Ekkert app og enginn skjár.

Hugmyndin kviknaði út frá reynslu stofnandans, Vals Þráinssonar, sem hefur sjálfur þurft að læra að lifa með eyrnasuði. Hann vildi hljóð í bakgrunni við skrifborðið, í sófanum með börnunum sínum og á kvöldin fyrir svefninn. Logn er þróað með þverfaglegu teymi sérfræðinga.

Markmið Logn er að fólk með eyrnasuð geti lifað í sátt við það.

Nánari upplýsingar er að finna á lognhealth.com.

KLAK health er fimm vikna viðskiptahraðall sem sniðinn er að þörfum sprotafyrirtækja í heilsutækni, allt frá stafrænum heilsutæknilausnum yfir í lækningatækni, líftækni og lyfjaþróun.
Bakhjarlar KLAK health eru Landspítali, heilbrigðisráðuneytið, Íslandsbanki, Helix, Securitas, Heilsuvernd, Lifa VC, Össur, Nox Medical, Frumtök og Lyfja.

Tengdir sprotar

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.