Affineva

Affineva er íslenskt líftæknifyrirtæki, sprottið úr rannsóknum við Háskóla Íslands, sem þróar nýstárlega tækni til að einangra og greina utanfrumubólur (e. extracellular vesicles, EVs) úr lífsýnum, svo sem blóði, með það að markmiði að stuðla að snemmgreiningu krabbameina og annarra sjúkdóma. Utanfrumubólur bera mikilvægar líffræðilegar upplýsingar um frumurnar sem þær koma frá og eru því efnileg uppspretta lífmerkja til sjúkdómsgreininga. Ein helsta áskorunin er hins vegar að lífsýni innihalda afar fjölbreytta undirhópa utanfrumubóla sem hefðbundnar einangrunaraðferðir ná ekki að aðgreina með nægilega sértækum hætti.

Lausn Affineva byggir á sértækri binditækni (e. affinity-based capture), þar sem sérhönnuð mótefnabrot og önnur bindiprótein þekkja ákveðin yfirborðslífmerki utanfrumubóla. Tæknin gerir kleift að einangra valda undirhópa utanfrumubóla úr flóknum lífsýnum og auðveldar þannig greiningu sjúkdómstengdra lífmerkja sem annars gætu farið fram hjá rannsakendum í blönduðum sýnum. Á grundvelli tækninnar þróar Affineva stöðluð og notendavæn einangrunarsett (e. isolation kits) fyrir rannsóknarstofur, auk sérframleiddra utanfrumubóla sem nýtast sem viðmiðunarstaðlar við gæðaeftirlit og stöðlun mælinga.

Til lengri tíma stefnir Affineva að því að nýta tæknina í samstarfi við heilbrigðisstofnanir og aðra samstarfsaðila til þróunar nýrra greiningarprófa (e. in vitro diagnostics, IVD) sem geta stuðlað að fyrr og nákvæmari greiningu krabbameina og annarra sjúkdóma.

Affineva – KLAK Health 2026

Related shoots

We use cookies 🍪

We use cookies to improve your experience, analyze site usage, and support the continued development of our services. By clicking "Accept All", you consent to their use.