IORDEN keppti fyrir hönd Íslands á Gen-E í Lettlandi

IORDEN-teymið keppti fyrir hönd Íslands á Gen-E, stærstu nýsköpunarkeppni Evrópu fyrir ungt fólk, sem haldin var í Riga í Lettlandi í vikunni. Anna Schalk Sóleyjardóttir, verkefnastjóri Gulleggsins fylgdi teyminu og nýtti ferðina jafnframt til að kynnast framkvæmd keppninnar og sækja innblástur fyrir áframhaldandi þróun Gulleggsins.  

Gen-E safnar árlega saman efnilegustu ungu frumkvöðlum Evrópu, þar sem sigurvegarar frumkvöðlakeppna frá yfir 39 löndum koma saman til að kynna verkefni sín, keppa á alþjóðlegum vettvangi og mynda tengsl við aðra frumkvöðla, leiðbeinendur og fulltrúa atvinnulífsins víðs vegar að úr Evrópu.

Dagskráin samanstóð meðal annars af sviðskynningum teyma, sýningarsvæði þar sem þátttakendur kynntu lausnir sínar og fjölbreyttum tengslamyndunarviðburðum. Sem dæmi um lausnir sem tóku þátt í keppninni voru golftí gerð úr appelsínuberki, próteinduft úr sveppum, drónalausn fyrir jarðrækt, reipi úr fiskiroði og atvinnuleitarforrit sérstaklega ætlað GenZ.

IORDEN varð til í Hugmyndahraðhlaupi Gulleggsins og Landsbankans í janúar og þróaði lausn við áskorun JBT Marel. Teymið hlaut síðar annað sætið í Lokakeppni Gulleggsins. Teymið fékk einnig aukaverðlaun Ungra frumkvöðla sem veittu því þátttökurétt á Gen-E í Lettlandi. IORDEN hannar hugbúnaðar- og tækjalausn til að hjálpa smærri matvælaframleiðendum að halda í við öra tækniþróun og uppfylla kröfur um gæðastjórnun á einfaldari og hagkvæmari hátt.  

Keppnin var afar sterk í ár og tóku háskóla- og framhaldsskólanemar frá yfir 39 Evrópulöndum þátt. IORDEN stóð sig með mikilli prýði og var tilnefnt til FedEx-verðlaunanna auk þess að keppa til úrslita um Innovation of the Year-verðlaunin. Að lokum hlaut hollenska teymið Verdiax verðlaunin fyrir lausn sína sem felst í þróun umhverfisvænna bleia sem brotna niður í náttúrunni.

KLAK óskar IORDEN innilega til hamingju með glæsilegan árangur og þakkar Ungum Frumkvöðlum fyrir frábært samstarf og tækifærið til að taka þátt í Gen-E. Við hlökkum til að fylgjast áfram með árangri íslenskra frumkvöðla á alþjóðlegum vettvangi og sjá fleiri Gulleggs-teymi taka þátt í keppninni á komandi árum.

en_GBEnglish (UK)

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.