The KLAK health teams present their ideas in Cod Tank at Kerecis

KLAK health heimsótti á dögunum Kerecis, einn af bakhjörlum verkefnisins. Í heimsókninni tóku teymi KLAK health þátt í svokölluðu Cod Tank þar sem þau kynntu hugmyndir sínar fyrir sérfræðingum Kerecis og fengu uppbyggilega endurgjöf á verkefnin.

Kerecis hefur um árabil verið í fararbroddi á sviði nýsköpunar og er öflugur samstarfsaðili KLAK health. Heimsóknin í höfuðstöðvar fyrirtækisins og þátttaka í Cod Tank var því kærkomið tækifæri fyrir teymin í verkefninu til að tengjast leiðandi sérfræðingum í greininni.

Í Cod Tank kynntu teymin lausnir sínar, frumgerðir og viðskiptalíkön fyrir panel frá Kerecis, en þeir kölluðu sig sjálfir „Þorkshausana“. Þorskhausarnir lögðu mat á hugmyndirnar, spurðu gagnrýninna spurninga og veittu markvissa ráðgjöf um næstu skref í þróun og uppbyggingu verkefnanna.

Slík heimsókn er mikilvægur liður í því að tengja sprotafyrirtæki í heilbrigðisgeiranum beint við atvinnulífið. Með því að fá að viðra hugmyndir sínar í raunverulegu umhverfi, fyrir framúrskarandi fagfólk, styrkja teymin bæði lausnir sínar og trú á eigin verkefni.

KLAK health vill færa Kerecis kærar þakkir fyrir höfðinglegar mótttökur, traust og sterkan stuðning við verkefnið.

Lokadagur KLAK health fer fram á morgun i beinu streymi hér:

Sjáið myndir úr heimsókninni hér að neðan 📸

Bakhjarlar KLAK health eru Landspítali, Heilbrigðisráðuneytið, Íslandsbanki, Helix, Kerecis, Lifa VC, Veritas, Össur og Nox Medical.

KLAK health is a five-week business accelerator tailored to the needs of health technology startups, ranging from digital health technology solutions to medical technology, biotechnology, and pharmaceutical development.

We use cookies 🍪

We use cookies to improve your experience, analyze site usage, and support the continued development of our services. By clicking "Accept All", you consent to their use.