Lokadagur Hringiðu haldinn hátíðlegur í Hörpu

Lokadagur Hringiðu var haldinn þann 20. maí og markaði lok Hringiðuhraðalsins 2026. Þar fengu gestir að kynnast teymunum sem tóku þátt í hraðlinum og sjá hvernig hugmyndir hafa þróast áfram síðustu vikur og orðið að fyrirtækjum. Viðburðurinn var haldinn í Björtuloftum í Hörpu með einstöku útsýni yfir Reykjavík.

Borgarstjóri Reykjavíkur, Heiða Björg Hilmisdóttir, flutti opnunarerindi og Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK, kynnti Hringiðu og fór yfir árangur hraðalsins síðastliðin ár. Af þeim 39 fyrirtækjum sem hafa farið í gegnum Hringiðu eru um helmingur starfandi í dag og saman hafa teymin sótt yfir 1,4 milljarða króna í fjármögnun frá styrktarsjóðum og fjárfestum. 

Í kjölfarið kynntu sprotarnir hugmyndir sínar og lausnir, sem allar stuðla að sjálfbærni, hringrásarhagkerfi og jákvæðum umhverfisáhrifum. Birna Rún Eiríksdóttir, uppistandari, hélt utan um dagskrá viðburðarins en teymin höfðu fimm mínútur til að pitcha og svara spurningum frá pallborði fjárfesta. Í pallborðinu sátu Hrönn Greipsdóttir, forstjóri Nýsköpunarsjóðsins Kríu og stjórnarformaður KLAK, og Jenný Ruth Hrafnsdóttir, meðstofnandi og vísisfjárfestir hjá Crowberry Capital. Að kynningum loknum fór fram spjall og tengslamyndun í sólinni á svölum Hörpu. 

KLAK þakkar bakhjörlum Hringiðu, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, Reykjavíkurborg, Faxaflóahöfnum, Terra og Samtökum iðnaðarins, innilega fyrir stuðninginn við verkefnið og þátttakendum hamingjuóskir fyrir vel heppnaðan hraðall.

Hringiða er viðskiptahraðall á vegum KLAK – Icelandic Startups sem styður við sprotafyrirtæki sem þróa grænar lausnir og sjálfbær verkefni. Markmið hraðalsins er að efla nýsköpun sem stuðlar að sjálfbærari framtíð og skapa umhverfi þar sem hugmyndir geta þróast í öflug fyrirtæki.

Bakhjarlar Hringiðu eru Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Reykjavíkurborg, Faxaflóahafnir, Terra, og Samtök iðnaðarins.

en_GBEnglish (UK)

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.