Hlutverk KLAK health hraðalsins er að styðja við sprotafyrirtæki sem vinna að fjölbreyttum lausnum í heilsutækni. Hraðallinn veitir þátttakendum aðgang að sérhæfðri fræðslu, leiðsögn frá sérfræðingum og tengslum við fjárfesta og lykilaðila í nýsköpunarumhverfinu.
Dæmi um lausnir í heilsutækni:
Lækningatækni (MedTech)
- Lækningatæki, greiningarbúnaður, ígræðslur og hugbúnaður sem telst lækningatæki (SaMD)
Líftækni og lausnir fyrir lyfjageirann (BioTech & Pharma)
- Líftæknivörur, lyfjaþróun og háþróaðar meðferðir
Stafrænar heilsulausnir (Digital Health)
- Hugbúnaður, gögn og tengdar heilsulausnir
Neytendalausnir (Consumer Health)
- Forvarnir, vellíðan, geðheilbrigði og lífstílslausnir
Áhersla er lögð á að þátttakendur öðlist dýpri skilning á regluverki, tæknilegum kröfum og viðskiptalegum tækifærum tengdum þeirra lausnum. Að loknum hraðlinum hafa þátttakendur mótað skýra viðskiptaáætlun og eru í stakk búnir til að kynna hugmyndir sínar fyrir fjárfestum, samstarfsaðilum og öðrum lykilaðilum. Allt að tíu fyrirtæki verða valin til þátttöku og fá aðgang að skrifstofuaðstöðu í Grósku á meðan á hraðlinum stendur. Þátttaka í hraðlinum er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Opið er fyrir umsóknir í KLAK health hraðalinn út 4. Október 2026 og sótt er um í gegnum hlekk hér efst á síðunni.