KLAK health

Viðskiptahraðall í heilsutækni

KLAK health er fimm vikna viðskiptahraðall sem sniðinn er að þörfum sprotafyrirtækja í heilsutækni, allt frá stafrænum heilsutæknilausnum yfir í lækningatækni, líftækni og lyfjaþróun.

Hlutverk KLAK health hraðalsins er að styðja við sprotafyrirtæki sem vinna að fjölbreyttum lausnum í heilsutækni. Hraðallinn veitir þátttakendum aðgang að sérhæfðri fræðslu, leiðsögn frá sérfræðingum og tengslum við fjárfesta og lykilaðila í nýsköpunarumhverfinu.

Dæmi um lausnir í heilsutækni:

Lækningatækni (MedTech)

  • Lækningatæki, greiningarbúnaður, ígræðslur og hugbúnaður sem telst lækningatæki (SaMD)

Líftækni og lausnir fyrir lyfjageirann (BioTech & Pharma)

  • Líftæknivörur, lyfjaþróun og háþróaðar meðferðir

Stafrænar heilsulausnir (Digital Health)

  • Hugbúnaður, gögn og tengdar heilsulausnir

Neytendalausnir (Consumer Health)

  • Forvarnir, vellíðan, geðheilbrigði og lífstílslausnir

Áhersla er lögð á að þátttakendur öðlist dýpri skilning á regluverki, tæknilegum kröfum og viðskiptalegum tækifærum tengdum þeirra lausnum. Að loknum hraðlinum hafa þátttakendur mótað skýra viðskiptaáætlun og eru í stakk búnir til að kynna hugmyndir sínar fyrir fjárfestum, samstarfsaðilum og öðrum lykilaðilum. Allt að tíu fyrirtæki verða valin til þátttöku og fá aðgang að skrifstofuaðstöðu í Grósku á meðan á hraðlinum stendur. Þátttaka í hraðlinum er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Opið er fyrir umsóknir í KLAK health hraðalinn út 4. Október 2026 og sótt er um í gegnum hlekk hér efst á síðunni.

Samstarfsaðilar

Gull2

Silfur4

Brons5

Sprotar

Sjá alla sprota

Fréttir

Sjá allar fréttir

Starfsfólk

Sjá allt starfsfólk

VMS - Mentorar

Sjá alla mentora

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.