Lífleg stemning myndaðist í Grósku þann 6. maí þegar KLAK – Icelandic Startups stóð fyrir Prosecco & Pitch viðburði Hringiðu 2026. Þar komu saman frumkvöðlar, fjárfestar, mentorar og áhugafólk um nýsköpun til að hlýða á fjölbreytt pitch frá þátttakendum hraðalsins.
Viðburðurinn gaf teymunum í Hringiðu, sem öll vinna þau að þróun umhverfisvænna lausna, tækifæri til að kynna sprotafyrirtæki sín fyrir gestum, á meðan boðið var upp á freyðivín og makkarónur
Andri Ívars leiddi dagskrá kvöldsins og tók nokkur lög á gítar inn á milli pitcha. Eldar Ástþórsson frá Faxaflóahöfnum, sem hafa verið bakhjarlar Hringiðu frá upphafi, flutti einnig erindi á viðburðinum. Þar kynnti hann meðal annars nýju farþegamiðstöðina Vör og framtíðarsýn tengda uppbyggingu hafnarsvæða og sjálfbærra samgangna.













































Teymin sem tóku þátt voru Araxni, E-Lísa, IORDEN, Loopable, Ratatag, Soil Lagoon og Thermal Beets Records. Hugmyndirnar spönnuðu vítt svið og sýndu vel þann fjölbreytileika sem einkennir þátttakendur Hringiðu í ár.
Hringiða er viðskiptahraðall á vegum KLAK – Icelandic Startups sem styður við sprotafyrirtæki sem þróa grænar lausnir og sjálfbær verkefni. Markmið hraðalsins er að efla nýsköpun sem stuðlar að sjálfbærari framtíð og skapa umhverfi þar sem hugmyndir geta þróast í öflug fyrirtæki.
Bakhjarlar Hringiðu eru Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Reykjavíkurborg, Faxaflóahafnir, Terra, og Samtök iðnaðarins.