Fullur salur á klúðurkvöldi Startup SuperNova – hlátur, lærdómur og dýrmæt ráð til frumkvöðla

Það var troðfullt á klúðurkvöldi Startup SuperNova þar sem frumkvöðlar, sprotafyrirtæki og áhugafólk um nýsköpun komu saman til að hlæja, læra og spegla sig í reynslu annarra.
Klúðurkvöld er viðburður þar sem reyndir frumkvöðlar segja opinskátt frá mistökum og allskyns óvæntum áskorunum sem þeir hafa upplifað í sprotaferlinu. Kvöldið skapar vettvang fyrir skemmtilegar sögur, samtöl og gefur fólki innsýn í allt það óvænta, kaotíska og lærdómsríka sem fylgir því að byggja upp sprotafyrirtæki.
Stemningin var létt, hlý og einlæg – en um leið gagnleg fyrir alla sem eru að feta sína frumkvöðlaleið, hvort sem hugmyndir eru á fyrstu stigum eða orðnar að sprotafyrirtæki í rekstri.

Reyndir frumkvöðlar deila sínum sögum

Fram komu Steinn Arnar Kjartansson, stofnandi Humble, Eyþór Máni Steinarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Hopp, Guðrún Hildur Ragnarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Keeps auk Soffíu Kristínar Þórðardóttur, stofnanda og framkvæmdastjóra PaxFlow sem deildi reynslu af stofnun sprotafyrirtækis innan stórfyrirtækis.. Í erindunum fléttuðust saman hagnýt ráð, dýrmæt reynsla og heiðarlegar frásagnir af mistökum sem hefðu auðveldlega getað haft alvarlegar afleiðingar – en urðu þess í stað að mikilvægu lærdómsferli.

Steinar frá Humble rifjaði upp krefjandi tímabil þegar hann stóð um tíma einn eftir í daglegum rekstri fyrirtækisins á meðan aðrir sinntu öðrum verkefnum eða voru í fæðingarorlofi. Í álaginu fóru mikilvæg póstsamskipti fram hjá honum með afdrifaríkum afleiðingum og varð sagan áhrifarík áminning um mikilvægi skýrra ferla, forgangsröðunar og góðra samskipta. 

Hoppað um allan heim

Í erindi frá Hopp var fjallað um hvernig það er að vaxa og þróast í skugga stórra samkeppnisaðila og hvernig jafnvægið milli metnaðar og fókus getur reynst viðkvæmt.. Guðrún frá Keeps deildi svo litríkum sögum úr fjármögnunarferli fyrirtækisins og sölustarfi, þar á meðal ferðum til Afríku, sem undirstrikuðu að þolinmæði, húmor og seigla skipta ekki síður máli en góð Excel-skjöl.

Soffía deildi innsýn í  hvernig það er að starfa í startup-umhverfi innan veggja stórfyrirtækis og dró fram reynslu sína úr ferðaþjónustu í miðju Covid. Hún lýsti því hvernig óvissa, sífelldar breytingar og pressa utan frá geta á sama tíma skapað gríðarlegan þrýsting og einstök tækifæri til að hugsa nýtt, endurhanna ferla og finna lausnir á örskömmum tíma.

Þrátt fyrir ólíkar reynslusögur var meginboðskapur kvöldsins skýr: mistök eru óumflýjanlegur hluti af frumkvöðlaferðalaginu – og þegar þau eru rædd af hreinskilni, húmor og lærdómsvilja verða þau að sameiginlegum auðlindum fyrir allt vistkerfið. Klúðurkvöld Startup SuperNova 2026 minnti á mikilvægi þess að deila reynslu, læra af hvoru öðru og halda áfram – betur í dag en í gær.

en_GBEnglish (UK)

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.