Myndband úr Vísindaferð Gulleggsins 16. janúar

Önnur vísindaferð Gulleggsins 2026 fór fram í Grósku föstudaginn 16. janúar kl. 17:00–20:00 og var opin öllum háskólanemum. Á viðburðinum var Gulleggið, stærsta og elsta frumkvöðlakeppni Íslands, kynnt fyrir gestum og nemar fengu tækifæri til að hitta fulltrúa úr hópi bakhjarla keppninnar og spjalla um hugmyndir, tækifæri og næstu skref í frumkvöðlastarfi.

Mæting í vísindaferðina var mjög góð og skapaðist frábær stemning í hátíðarsal Grósku. Boðið var upp á veitingar frá CCEP á meðan birgðir entust og Alaska1867 sá um tónlistina og hélt uppi fjörinu. Að lokinni dagskrá breyttist viðburðurinn í alvöru frumkvöðlapartí þar sem gestir héldu áfram tengslamyndun, deildu hugmyndum og kynntust betur.

Vísindaferðin endurspeglaði sterkan áhuga háskólanema á nýsköpun og frumkvöðlastarfi og sýndi um leið mikilvægi þess að skapa vettvang þar sem nemar, fyrirtæki og bakhjarlar koma saman, tengjast og fá innblástur til að þróa næstu kynslóð sprotafyrirtækja.

Hér getið þið séð brot frá kvöldinu

is_ISÍslenska

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.