Það eru fjölmargar leiðir að því að stofna fyrirtæki. Við höfum varðað leiðina til að vekja athygli á því hversu öflugt stuðningsumhverfi nýsköpunar er á Íslandi. Með því að styðjast við sprotaferlið geta frumkvöðlar á auðveldan hátt sótt sér viðeigandi styrki og stuðning á hverju stigi þróunar.
Sprotaferlið
Hugmynd
Ertu með hugmynd? Frábært – farðu yfir í næsta skref. Langar þig að fá hugmynd? Flestar hugmyndir eru hnitmiðaðar lausnir á algengnum vandamálum svo til að fá hugmynd er gott að horfa á heiminn gagnrýnum augum og hugsa, hvað má betur fara.
Gulleggið
Gulleggið er frumkvöðlakeppni á hugmyndastigi og er haldin í byrjun árs. Hægt er að skrá sig í Gulleggið með eða án hugmyndar. Fyrirkomulagið er þannig að allir geta skráð sig í Masterclass sem er kraftmikil helgi þar sem áhersla er lögð á að þátttakendur læri að gera „pitch deck“ eða stutta glærukynningu sem gerir hugmyndinni góð skil. Í kjölfarið er svo keppt um bestu kynninguna. Hér getur þú kynnt þér Gulleggið.
Fræ
Fræ er styrkur með það markmið að styðja við hugmyndir og verkefni á frumstigi semgeta leitt af sér stærra þróunarverkefni. Til þess að sækja um í Fræ þarf að skila inn 10 glæru kynningu sem gerir hugmyndinni góð skil – tilviljun? Hér getur þú kynnt þér Fræ.
Hraðall
Klak keyrir árlega 3-4 viðskiptahraðla með mismunandi áherslur. Tókstu þátt í Gullegginu og þú jafnvel búin að fá Fræ styrk? Ertu komin með gott teymi og þið tilbúin að taka næsta skref? Þá er viðskiptahraðall málið. Kjarninn í okkar hröðlum eru mentoraprógrömin en við tengjum frumkvöðla við reynslumikla frumkvöðla og sérfræðinga úr viðskiptalífunu. Skoðaðu hraðlana okkar betur hér.
Sproti
Sproti getur numið allt að 20 milljónum króna á tveimur árum og er ætlaður ungum nýsköpunarfyrirtækjum og frumkvöðlum sem eru að vinna að verkefni á byrjunarstigi. Kynntu þér Sprotastyrkinn hér.
Dafna
Dafna eru vinnstofur fyrir þau sem hlotið hafa Sprotastyrk frá Tækniþróunarsjóði. Hér hefst vinnan fyrir alvöru! Vinnustofurnar eru vikulangar og eru haldnar tvisvar á ári og í kjölfar þeirra fá allir styrkþegar útnefndan mentor sem fylgir þeim næstu sex mánuðina. Lestu meira um Dafna hér.
Fjármögnun
Ýmsar leiðir eru til fyrir sprotafyrirtæki að fjármagna verkefnin sín.
Hraðall 2.0
Hraðlar fyrir lengra komin fyrirtæki er oft gott að sækja utan landsteinana og tekur Klak þátt í því að kynna og finna fyrirtæki inn í alþjóðlega hraðla svo sem TINC í Sílikondal. Þú getur lesið meira um TINC hér.
Vöxtur
Vöxtur getur numið allt að 50 milljónum króna á tveimur árum og er ætlaður ti að styrkja þróunarverkefni sem eru komin af frumstigi hugmyndar. Kynntu þér Vaxtarstyrkinn hér.
Fjármögnunarumhverfi
sprotafyrirtækja
Ýmsar leiðir eru til fyrir sprotafyrirtæki að fjármagna verkefnin sín.