
Þá hafa Teymin 10 sem keppa um Gulleggið í ár verið kynnt til leiks. Keppnin var ótrúlega hörð og fjöldinn allur af flottum umsóknum bárust úr öllum mögulegum flokkum atvinnulífsins.
Dómefnd, sem sett er saman úr tugum sérfæðinga úr atvinnulífinu átti erfitt verk fyrir höndum en hefur kynnt liðin 10 sem keppa til úrslita Föstudaginn 14. febrúar n.k.

VitalSync
“Markmið VitalSync er að lengja sjálfstæða búsetu aldraða”
Gústav Arnar Magnússon og Kristján Örn Aðalbjörnsson

Hvað nú?
“Hvað nú? einfaldar syrgjendum úrlausn hinna fjölmörgu verkefna sem fylgja andláti ástvinar með því að veita upplýsingar, ráðgjöf og aðstoð í ferlinu sem tekur við.”
Erna Niluka Njálsdóttir og Guðrún Heimisdóttir

Coliva
“Coliva eru kollagen munnpúðar”
Elísabet Reynisdóttir og Eyþór Arnar Ingvarsson

SamFam
“SamFam er fyrsta val foreldra þegar þau leita að ráðum eða upplýsingum.”
Brynja Bjarnadóttir og Kristín Hildur Ragnarsdóttir

VITI
“Viti er leikjaforrit sem hjálpar notendum að fylgjast með hugrænni heilsu í gegnum skemmtilega og örvandi leiki.”
Júlía Sóley Gísladóttir, Fehima Líf Purisevic, Ingibjörg Sigurðardóttir og Katla Rut Robertsdóttir Kluvers

SamVís
“SamVís er framtíð vísindalegrar gagnasöfnunar, þar sem hefðbundnar leitarvélar kveðja bransann og víkja fyrir öflugri gervigreindarlausn sem finnur, greinir og tengir þekkingu á áður óþekktan hátt.”
Birgir Bragi Gunnþórsson, Einir Sturla Arinbjarnarson, Haukur Ingi Sigrúnar Jónsson og Jóhann Tómas Portal.

Planda
“Planda er byltingarkenndur samfélagsmiðill; minni skjátími -fleiri gæðastundir”
Brynja Rún Sævarsdóttir, Anna Lilja Sigurðardóttir, Rakel Hrönn Sveinsdóttir og Björk Gunnarsdóttir

pilot bloks
“Pilot bloks er stýrikerfi fyrir gatnalýsingu byggt á opnum hugbúnaði”
Davíð James R Berman, Þór Fjalar Hallgrímsson, Kristinn Roach Gunnarsson og Wioleta Zelek

SagaReg
“Markmið Saga Reg er að einfalda lyfjaskráningar”
Guðjón Ásmundsson og Ómar Ingi Halldórsson

Huddle-Hop
“HuddleHop makes travel in Iceland smarter, cheaper, and greener.”
Anoop Ajaya Kumar Nair, Moses Osabutey og Ahmad Iftikhar Khan
Gulleggið er frumkvöðlakeppni á hugmyndastigi sem haldin er í upphafi hvers árs og haldin hefur verið af KLAK – Icelandic Startups síðan 2008. Keppnin er opin öllum, jafnt hugmyndasmiðum og áhugafólki um nýsköpun sem vill láta að sér kveða.