Í Gullegginu er oft talað um peningaverðlaun, en raunverulegi vinningurinn er mun stærri. Þú ert að keppa um tækifæri til að þróa hugmyndina áfram með öflugu stuðningsneti mentora, sérfræðinga og samstarfsaðila sem vilja sjá þig ná árangri.
Peningaverðlaun í lokakeppni
Í lokakeppni Gulleggsins 2026 verða veitt vegleg peningaverðlaun til þriggja efstu teymanna, í boði Landsbankans sem hafa stutt við keppnina frá upphafi:
- 1. sæti: 2.000.000 kr.
- 2. sæti: 1.000.000 kr.
- 3. sæti: 500.000 kr.
Þessi verðlaun hjálpa teymum að taka næstu skref – en auk þess bíða fjölbreytt tækifæri í formi sértæks stuðnings, ráðgjafar og aðstöðu til að þróa hugmyndir enn lengra.

Frumukjarninn – Líftækniverðlaun Gulleggsins 2026
Alvotech og Fruman veita Frumukjarnann – sérstök líftækniverðlaun Gulleggsins 2026 – til mest framúrskarandi líftækniverkefnisins í keppninni.
Verðlaunin innihalda:
- 300.000 kr. þróunarstyrk
Til að styðja fyrstu skref í þróunar- og nýsköpunarvinnu verkefnisins. - Þriggja mánaða þróunar- og prófunartækifæri hjá Frumunni
Úrvalsteymið fær að: - nýta aðgang að rannsóknarsetri Frumunnar,
- fá leiðsögn og handleiðslu reynslumikilla líftæknisérfræðinga,
- vinna eftir skýrri og markvissri þróunarleið sem mótuð er fyrir verkefnið.
- Sérsmíðaðan verðlaunagrip frá Héðni
Sérstakur gripur hannaður og smíðaður af Héðni, sem táknar nýsköpun, sköpunarkraft og tæknilega framsækni.
Aukaverðlaun KPMG – sérfræðiráðgjöf fyrir næstu skref
KPMG veitir aukaverðlaun til eins teymis í lokakeppni Gulleggsins, sem fulltrúi KPMG í dómnefnd velur.
Verðlaunin eru í formi ráðgjafar frá KPMG og gilda fyrir alla þá þjónustu sem félagið veitir. Hjá KPMG starfa sérfræðingar með yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á sviðum eins og:
- fyrirtækja- og lögfræðiráðgjöf,
- skattaráðgjöf,
- endurskoðun.
Þessi þekking nýtist nýsköpunarfélögum og frumkvöðlum sérstaklega vel, þar sem KPMG aðstoðar m.a. við áætlunargerð, fjárfestakynningar, stofnun félags, skattamál, styrkumsóknir, hluthafasamkomulög, samningagerð og fleira sem skiptir máli þegar hugmynd verður að rekstrarhæfu fyrirtæki.
Gróska | Heimar – aðstaða í hjarta nýsköpunar
Gróska | Heimar veita aukaverðlaun til eins teymis í lokakeppni Gulleggsins, sem fulltrúi Heima velur.
Verðlaunin felast í aðgangi að aðstöðu í Grósku, einum öflugasta suðupotti nýsköpunar á Íslandi, þar sem teymið fær tækifæri til að vinna að verkefninu sínu í hvetjandi umhverfi með öðrum frumkvöðlum og nýsköpunarfyrirtækjum.
Origo – ráðgjöf frá sérfæðingum
Origo veitir aukaverðlaun í lokakeppni Gulleggsins í formi ráðgjafar frá sérfræðingum fyrirtækisins.
Þessi ráðgjöf getur skipt sköpum fyrir teymi sem eru að þróa stafrænar lausnir, hvort sem um ræðir tæknilega stefnumótun, vörþróun, notendaupplifun eða innleiðingu lausna á markað.
Samanlagt þýða þessi verðlaun að þátttakendur í Gullegginu keppa ekki aðeins um fjárhagslegan hvata, heldur einnig um aðgang að öflugu vistkerfi sérfræðinga, aðstöðu, handleiðslu og tengsla sem geta flýtt fyrir vexti hugmynda og aukið líkur á langtímaárangri. Raunverulegi vinningurinn er því tækifærið til að umbreyta hugmynd í fyrirtæki sem skapar verðmæti fyrir samfélagið.
Ekki missa af þessu frábæra tækifæri og sæktu um í Gulleggið 2026 á Gulleggid.is