Hringiða, viðskiptahraðall fyrir grænar lausnir var kynnt á hádegisfundi í Grósku þann 5. febrúar s.l.
Á fundinum komu saman frumkvöðlar, samstarfsaðilar og aðrir áhugasamir um hringrásarhagkerfið og grænar nýsköpunarlausnir.
Haraldur, verkefnastjóri Hringiðu hjá KLAK – Icelandic Startups fór yfir fyrirkomulag Hringiðu í ár, helstu áfanga hraðalsins og þann stuðning sem teymi fá í gegnum ferlið. Þá deildu stofnendur Sea Growth og E1 reynslu sinni af þátttöku í hraðlinum og sögðu frá því hvernig Hringiða hefur hjálpað þeim að móta viðskiptalíkön, auka tengslanetið og undirbúa sig fyrir fjármögnun og styrkumsóknir.



Á kynningunni var lögð áhersla á að Hringiða styður sérstaklega við sprotafyrirtæki og teymi sem byggja á hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins, skapa verðmæt og áhugaverð störf og skila raunverulegum árangri í umhverfis- og loftslagsmálum.
Umsóknir í Hringiðu eru nú opnar
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í Hringiðu og hvetjum við öll teymi sem eru að huga að grænum lausnum, og eru á hugmyndastigi, til að sækja um. Markmið hraðalsins er að undir lok hraðalsins hafi teymin mótað þróunaráætlun og skilgreint næstu skref ásamt því að fá tækifæri til að kynna verkefni sín til fjárfesta og annara lykilaðila í hringrásarsenunni.
Við leitum að metnaðarfullum teymum sem vilja byggja upp lausnir sem draga úr sóun, minnka losun, auka nýtingu auðlinda og skapa jákvæð samfélagsáhrif.
Sæktu um í Hringiðu
Hægt er að kynna sér Hringiðu nánar og sækja um á síðu Hringiðu
Við hlökkum til að taka á móti umsóknum og vinna með næstu kynslóð grænna sprota.


