ATH: Viðburðurinn er opinn öllum! 🎉🚀
Mistök eru óumflýjanlegur hluti af frumkvöðlaferðalaginu — en hvers vegna ekki að læra af mistökum annarra?
Á Klúðurkvöldi Startup SuperNova fáum við að heyra reynslusögur frumkvöðla sem hafa lent í alvöru áskorunum. Þau segja okkur frá sínum stærstu klúðrum, hvað fór úrskeiðis og — mikilvægast af öllu — hvað þau lærðu.
Þetta er einstakt tækifæri til að hlæja, læra og fá ómetanleg ráð fyrir þína eigin vegferð 💥
Viðburðurinn markar jafnframt opnun umsókna í Startup SuperNova, hraðalinn sem KLAK – Icelandic Startups stendur að í samstarfi við Nova og Huawei. Ef þú ert með viðskiptahugmynd er þetta fullkomið tækifæri til að fá innblástur og heyra frá þeim sem hafa siglt um stormasama sjó frumkvöðlastarfsins ⛵
Klúðrar verða kynntir þegar nær dregur 👏
Hvenær? 13. maí 2026, kl. 19:00–21:00
Hvar? Nova, Lágmúla 9