Strákar og stálp í HR

Föstudaginn 22. maí stóð Háskólinn í Reykjavík fyrir metnaðarfullum viðburði fyrir nemendur í 9. bekk grunnskóla, þar sem alls heimsóttu 1.242 ungmenni skólann. Markmið dagsins var að kynna fjölbreytt tækifæri í háskólanámi og atvinnulífi með fræðandi TED-erindum, vinnustofum og heimsóknum til fyrirtækja. Stemningin lét ekki á sér standa, DJ Jay-O sá um tónlistina og boðið var upp á pizzur í tilefni dagsins.

Viðburðurinn var meðal annars haldinn til að bregðast við þeirri þróun sem sést hefur á undanförnum árum, þar sem hlutfall drengja í háskólanámi hefur farið lækkandi. Með heimsókninni var leitast við að vekja áhuga ungs fólks á frekara námi og sýna fram á þau fjölbreyttu tækifæri sem menntun getur skapað til framtíðar.

Gagnvirkar vinnustofur í nýsköpun

KLAK tók virkan þátt í deginum og stýrðu verkefnastjórarnir Anna Schalk Sóleyjardóttir og Jenna Björk Guðmundsdóttir vinnustofum í nýsköpun og þróun viðskiptalíkana fyrir um 60 nemendur. Mikill áhugi skapaðist meðal þátttakenda sem luku vinnustofunum á kynningum á fjölbreyttum og spennandi nýsköpunarlausnum. Það vakti sérstaka athygli hvernig þátttakendur blómstruðu í skapandi og lausnamiðaðri hugsun og mátti greinilega sjá frumkvöðla framtíðarinnar mótast.

KLAK þakkar Háskólanum í Reykjavík kærlega fyrir frábært samstarf og ánægjulegan dag

is_ISÍslenska

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.