Kynningarfundur VMS+, sjö öflug teymi valin í fyrsta hópinn

KLAK – Icelandic Startups ýtti á dögunum úr vör VMS+, nýju framhaldi af KLAK VMS mentoraþjónustunni. Af því tilefni komu fyrstu þátttakendur VMS+ og mentorar þeirra saman í Grósku þar sem farið var yfir fyrirkomulag prógrammsins og næstu skref í mentorastarfinu.

VMS+ er ætlað völdum fyrirtækjum sem hafa lokið viðskiptahröðlum eða DAFNA hjá KLAK, sýnt sterka framvindu og eru komin á það stig að standa frammi fyrir stórum og mikilvægum ákvörðunum á fyrstu vaxtarárunum.

Þátttaka í VMS+ er í boði fyrir afmarkaðan hóp fyrirtækja sem fá áframhaldandi aðgang að mentoraþjónustunni. Með VMS+ vill KLAK taka mentoraþjónustuna skrefinu lengra og skapa vettvang fyrir öflug teymi til að halda áfram að vaxa og þróast með sterkt mentorateymi sér við hlið.

Sjö teymi valin til þátttöku í VMS+

Fyrstu sjö teymin sem KLAK hefur valið til þátttöku í VMS+ eru Bella Books, Dóttir Skin, Marea, Ornovo, Pikkoló, Rekovy og Saga Reg.

Teymin hafa öll áður tekið þátt í verkefnum KLAK og hafa haldið áfram að þróa fyrirtæki sín að þeim loknum. Með þátttöku í VMS+ fá þau tækifæri til að byggja áfram á þeim grunni og tengslum sem hafa myndast innan KLAK og halda áfram markvissu samstarfi með reyndum mentorum úr KLAK VMS samfélaginu.

Fyrirtækin eru á ólíkum stöðum í sinni vegferð en eiga það sameiginlegt að vera komin á mikilvægt vaxtarskeið þar sem ákvarðanir um næstu skref geta haft veruleg áhrif á áframhaldandi þróun fyrirtækjanna.

Á kynningarviðburðinum komu teymin og mentorarnir saman til að marka formlegt upphaf VMS+ og farið var yfir hvernig nýja fyrirkomulagið getur stutt við fyrirtækin til lengri tíma.

Sveigjanlegra fyrirkomulag sem þróast með fyrirtækjunum

VMS+ byggir á sama trausta grunni og KLAK VMS mentoraþjónustan, með fyrirmynd frá MIT Venture Mentoring Service (MIT VMS), en býður upp á sveigjanlegra fyrirkomulag eftir að grunnprógramminu lýkur.

Ólíkt grunnprógramminu hefur VMS+ engan fyrirfram skilgreindan lokatíma. Fyrirtækin boða sjálf til funda eftir þörfum og halda áfram samstarfi með þeim mentorum sem henta þeim best hverju sinni. Þannig getur mentorastuðningurinn þróast samhliða fyrirtækinu og tekið mið af þeim áskorunum sem koma upp á mismunandi stigum vaxtar.

Markmiðið er að skapa samfellu í mentorastarfinu og tryggja að fyrirtæki þurfi ekki að kveðja öflugt mentorateymi einmitt þegar nýjar og stærri áskoranir fara að gera vart við sig.

Mentorasamstarf til lengri tíma

KLAK VMS byggir á þeirri hugmyndafræði að frumkvöðlar fái stuðning frá teymi reyndra mentora sem miðla af reynslu sinni og þekkingu í öruggu og trúnaðarbundnu umhverfi. Fyrirmyndin er sótt til MIT VMS, þar sem mentorasambönd geta þróast og haldist eins lengi og fyrirtækið hefur þörf fyrir.

VMS+ er næsta skref í þeirri vegferð hjá KLAK. Með því fær valinn hópur fyrirtækja sem hafa vaxið í gegnum verkefni KLAK tækifæri til að halda áfram að nýta kraftinn, reynsluna og tengslin innan KLAK VMS samfélagsins á næstu stigum uppbyggingar.

KLAK hlakkar til að fylgja fyrstu sjö VMS+ teymunum áfram og sjá þau takast á við næstu skref með öflugt mentorateymi sér við hlið.

Við notum vefkökur 🍪

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína, greina notkun á síðunni og styðja við áframhaldandi þróun á þjónustu okkar. Með því að smella á „Samþykkja allar“ samþykkir þú notkun þeirra.