fbpx

800 háskólanemendur sóttu vísindaferð Gulleggins

800 háskólanemendur flyktust í Grósku til að kynna sér Gulleggið, stærstu og elstu frumkvöðlakeppni landsins en það mun vera metfjöldi háskólanema í vísindaferð. KLAK – Icelandic Startups og Nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd HR keyrðu í gang síðustu vísindaferð Gulleggsins 2023 í Grósku þar sem helstu bakhjarlar Gulleggsins kynntu starfsemi sína.Tónlistarmaðurinn Birnir tók lagið á stóra sviðinu í hjarta Grósku og tryllti lýðinn eftir formlega opnun síðustu vísindaferðarinnar fyrir Gulleggið 2023 í hátíðarsal Grósku. Freyr Friðfinnsson frá KLAK startaði vísindaferðinni með kynningu á Gullegginu í troðfullum hátíðarsalum.

Bakhjarlar Gulleggsins komu fram og framkvæmdastjóri Grósku, Vera Dögg Antonsdóttir, fór yfir hugmyndinafræðina á bakvið Grósku við mikla hrifningu viðstaddra. Viggó Ásgeirsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar á einstaklingssviði Landsbankans, tók við og fór yfir starfsemi bankans en Landsbankinn hefur tekið þátt í verkefninu frá upphafi eða síðastliðin 16 ár. Gísli Herjólfsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Controlant, endaði á því að fara yfir aðkomu Controlant í Gullegginu. Controlant vann keppnina árið 2009 og á 15 ára afmæli fyrirtækisins er það nú einn af bakhjörlum keppninnar. 


Á föstudaginn klukkan fjögur verður tekið forskot á Gulleggs-sæluna og er öllum boðið í Grósku á viðburð með Bergi Ebba, þar sem frumkvöðlar fá tækifæri til að kynnast og sameina krafta sína áður en Masterclass Gulleggsins hefst.  


Aðalbakhjarl Gulleggsins 2023 er Landsbankinn sem hefur tekið þátt í verkefninu frá upphafi en meðal annarra bakhjarla eru Controlant, Origo, HVIN, Reykjavíkurborg, Hugverkastofa, Advania, Marel, Eyrir Invest, Íslandsstofa, Tækniþróunarsjóðurinn, Crowberry capital, KPMG, Ölgerðin, Brunnur, Kvika eignastýring, Gróska, Frumtak ventures, Vörður auk Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Akureyri og Háskóli Íslands.

Skráning í Gulleggið er í gangi og fer fram hér – síðasti dagurinn til að skrá sig er 20. janúar.

Gulleggið er unnið í samstarfi við Nýsköpunar- og frumkvöðlanefndir HÍ og HR. Árlega fær Gulleggið flotta einstaklinga til liðs við sig sem brenna fyrir nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi en Gulleggið er að stórum hluta stýrt af sjálfboðaliðum úr röðum háksólanema.

is_ISIcelandic